Fótbolti

Stefán Ingi skoraði af stysta mögu­lega færi

Sindri Sverrisson skrifar
Stefán Ingi Sigurðarson var reyndar grænklæddur í dag þegar hann skoraði eina mark GA Eagles.
Stefán Ingi Sigurðarson var reyndar grænklæddur í dag þegar hann skoraði eina mark GA Eagles. Getty/Gerrit van Keulen

Stefán Ingi Sigurðarson kom Íslendingaliðinu Go Ahead Eagles yfir gegn PEC Zwolle í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en það dugði skammt í 4-1 tapi.

Stefán Ingi skoraði markið á 22. mínútu með skalla en þó af eins stuttu færi og mögulegt er. Markvörður Zwolle hafði varið fyrirgjöf hátt upp í loftið og hinn stóri og stæðilegi Stefán Ingi átti auðvelt með að skalla boltann yfir marklínuna. Markið má sjá hér að neðan.

Stefán Ingi hefur nú skoraði tvö mörk í síðustu þremur leikjum og alls fjögur mörk á leiktíðinni í hollensku úrvalsdeildinni.

Staðan í dag var enn 1-0 í hálfleik en í seinni hálfleiknum skoruðu heimamenn fjögur mörk og tryggðu sér sigur.

Stefán Ingi lék allan leikinn en liðsfélagi hans Alfons Sampsted lék fram á 71. mínútu og var skipt af velli þegar staðan var orðin 3-1.

GA Eagles eru í 9. sæti með 11 stig eftir 9 leiki en Zwolle er í 15. sæti með 7 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×