Glamour

Fallegar varir hjá Maison Margiela

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Sýning John Galliano fyrir Maison Margiela á tískuvikunni í París í gær vakti athygli og ekki síst fyrir förðunina en þar var snillingurinn Pat McGrath á bakvið fallegt útlit fyrirsætanna. 

Bleikar varir, úfnar augabrúnir og falleg húð en við erum mjög hrifnar af þessum vörum hjá förðunarmeistaranum sem bauð upp á nýstárega tækni í varalitun. Liturinn var settur á varirnir en skilin eftir lína á miðjum vörunum.

Kom virkilega vel út á pallinum og spurning hvort þetta verði trendið næsta sumar - við erum allavega til í að prófa!



×