Hefur ekki áhyggjur af því að mansal aukist með breytingum á útlendingalögum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. september 2017 11:45 Guðríður Lára Þrastardóttir, lögfræðingur hjá Rauða krossinum, segir erfitt að segja til um það hversu mörg börn muni fá alþjóðlega vernd hér í kjölfar þess að Alþingi samþykkti breytingar á útlendingalögum. vísir/ernir
Guðríður Lára Þrastardóttir, lögfræðingur hjá Rauða krossinum, segir erfitt að segja til um það hversu mörg börn muni fá alþjóðlega vernd hér í kjölfar þess að Alþingi samþykkti breytingar á lögum um útlendinga í nótt. Hún segir breytingar ekki fela það í sér að verið sé að veita börnum frekari rétt en þau hafa nú þegar til að fá hæli hér á landi heldur snúa breytingar að þeim málsferðartíma sem stjórnvöld hafa fyrir umsóknir barna um alþjóðlega vernd. Guðríður segir að Rauði krossinn telji ekki að breytingar í þessa veru auki líkurnar á mansali en þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja svo vera, það er að mansal aukist eða smygl á börnum hingað til lands. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er formaður allsherjar- og menntamálanefndar. Sjálfstæðisflokkurinn skilaði minnihlutaáliti vegna breytinga á útlendingalögum sem Alþingi samþykkti í nótt. Telja þingmenn flokksins að breytingarnar geti aukið líkur á mansali. Vísir/ErnirGildistaka laganna snýr aðeins að þeim börnum sem er nú þegar komin Um bráðabirgðaákvæði í útlendingalögum er að ræða og verða lögin svo tekin til frekari meðferðar á Alþingi þegar það kemur saman á ný eftir kosningar. Annars vegar var samþykkt að íslensk stjórnvöld skuli taka umsókn barns um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar ekki seinna en níu mánuðum eftir að umsókn barst. Fresturinn var áður 12 mánuðir. Þá var hins vegar samþykkt að annar frestur í málum barna verði styttur úr 18 mánuðum í 15. Er um að ræða þegar börn hafa sótt um alþjóðlega vernd en ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan fimmtán mánaða. Þá megi veita þeim dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, að uppfylltum öðrum skilyrðum. „Gildistaka þessara laga snýr aðeins að þeim börnum sem eru nú þegar komin. Þannig að ef að það kemur barn hingað í dag þá mun það ekki njóta þessara réttinda nema gildistímanum verði breytt á nýju þingi. Lögin gilda sem sagt fyrir börn sem komu fyrir daginn í gær og eru enn hér á Íslandi. Þetta gildir ekki um börn sem eru farin úr landi,“ segir Guðríður.Breytingarnar á lögunum munu veita Mary (átta ára frá Nígeríu) og Haniye (11 ára frá Afganistan) og fleiri börnum efnislega meðferð á umsóknum sínum um hæli hjá stjórnvöldum.VísirErfitt að segja til um hversu mörg börn fái vernd í kjölfar lagabreytinganna Hún segir Rauða krossinn vera að taka saman hversu mörg börn kunni að falla undir lögin. Síðan verði haft samband við þær fjölskyldur sem um er að ræða. „Það er mjög erfitt að segja til um það hversu mörg börn fá hérna vernd í kjölfarið því það að mál fari í efnismeðferð þýðir ekki að maður fái endilega vernd. Það fer alveg eftir því hvaðan þú ert að koma og hverjar ástæður þínar eru fyrir flótta frá heimaríki. Svo eru til dæmis börn sem eru búin að vera hér í átta mánuði og við vitum ekki hvort að stjórnvöld taki ákvörðun innan níu mánaða svo þetta á eftir að koma í ljós,“ segir Guðríður. Fresturinn sem er styttur úr 18 mánuðum í 15 snýr að því ef mál barns hefur verið í efnismeðferð en ekki er búið að klára málið eða umsókn hefur verið synjað en barnið er samt enn á Íslandi. Þá má veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum. Bendir Guðríður á að börn séu ekki undanþegin þeim skilyrðum sem sett eru í lögum um útlendinga í 2. málsgrein 74. greinar, lið a til d.Börn í flóttamannabúðum í Grikklandi. Lögfræðingur Rauða krossins telur ekki að mansal muni aukast hér á landi vegna breytinga á útlendingalögum sem snúa málsmeðferðartíma stjórnvalda vegna umsókna barna hér um alþjóðlega vernd.vísir/epaMjög fá dæmi um að börn komi til landsins í fylgd fullorðinna sem þau hafa engin tengsl viðEn telur Rauði krossinn að breytingar í þessa veru auki líkurnar á mansali? „Nei. Það er í fyrsta lagi vegna þess að þetta gildir ekki nema um þau börn sem þegar eru komin hingað. Mér skilst að ráðherra vilji meina það að nú muni óprúttnir aðilar úti í heima frétta af þessum reglum og fara þá kaupa sér börn í flóttamannabúðum til að koma með hingað til lands í þeirri von að málið þeirra verði tekið til efnismeðferðar eða þeir fái dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða innan frestsins. Lögin gilda ekki um þau börn sem koma hingað á morgun eða í næstu viku. Í öðru lagi þá er ekki verið að veita börnum ríkari rétt til leyfis heldur einungis verið að stytta tímann sem stjórnvöld hafa til að leysa úr málum,“ segir Guðríður. Þá kveðst hún ekki hafa áhyggjur af því að mansal aukist ef lögin verða víðtækari síðar meir og muni taka almennt til allra barna sem sækja hér um alþjóðlega vernd. Um sé að ræða styttingu á málsmeðferðartíma í málum barna, tíminn sé hins vegar ekki það stuttur að þetta þýði endilega breytingu í sjálfu sér, þar sem sé annars vegar um níu mánuði að ræða og hins vegar 15. Stjórnvöld hafi lengi haft það að markmiði að málsmeðferðartími fari ekki fram úr 90 dögum á hvoru stjórnsýslustigi en þessi tími sé mun lengri en það. Guðríður segir mjög fá dæmi um það að börn komi hingað til lands í fylgd með einstaklingum sem að tengist þeim ekkert. Hún muni eftir einu slíku tilfelli og það var leyst með aðstoð lögreglu og barnaverndaryfirvalda. Guðríður segist ekki geta tjáð sig um hvort barnið fór úr landi eða fékk hæli hér en segir þó að því hafi verið komið frá þeim aðila sem kom með því til landsins.
Flóttamenn Tengdar fréttir Samþykktu breytingar á útlendingalögum Sautján þingmenn Sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði gegn því. 27. september 2017 06:27 Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Innlent „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Innlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Erlent Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Innlent Fleiri fréttir Þessi 24 vilja taka við bæjarstjórastólnum af Magnúsi Skráðum félögum í Nýju Avalon fjölgaði um 575 prósent Telja ríkið vera að brjóta samkomulag um börn með fjölþættan vanda Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut „Við stöndum öll með starfsemi Samhjálpar“ Óvissa með kaffistofu Samhjálpar og listaverk Gerðar í hættu Konum sem beita heimilisofbeldi fjölgar Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Jarðskjálftar í grennd við Húsafell en enginn órói „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Fluttur á slysadeild eftir að bifreið var ekið á rafskútu Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“ Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Rafmagn komið aftur á í miðbæ Reykjavíkur Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar Allir umsækjendurnir metnir jafn hæfir Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ „Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Harpa verður fulltrúi Íslands á heimsmeistaramóti nuddara Sjálfstæðisflokkur á flugi og ríkisstjórnin aldrei mælst með minna fylgi Tíðindi í glænýrri Maskínukönnun, Samhjálp og HM í nuddi Opna nýtt hjúkrunarheimili með 90 rýmum í Reykjanesbæ Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Myndir úr Hvalfirði: Langreyðar dregnar á land „Planið“ sé byrjað að virka Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Sjá meira
Samþykktu breytingar á útlendingalögum Sautján þingmenn Sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði gegn því. 27. september 2017 06:27
Fer full af bjartsýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið áfram á einhverjum tímapunkti“