Barcelona náði fjögurra stiga forskoti á toppi spænsku deildarinnar á ný með 2-0 sigri á Malaga í kvöld en fyrsta mark Barcelona hefði aldrei átt að standa og voru gestirnir skiljanlega ósáttir.
Með sigrinum náði Barcelona aftur fjögurra stiga forskoti á Valencia og átta stiga forskoti á Real Madrid en spænsku meistararnir geta saxað á það þegar þeir mæta Eibar á morgun.
Börsungar komust yfir strax á upphafsmínútunum þegar Gerard Deulofeu stýrði boltanum í netið af stuttu færi en í endursýningu sást að það mark átti greinilega ekki að standa.
Lucas Digne lagði boltann fyrir Deulofeu en hann var kominn út af vellinum þegar hann gaf inn í teiginn. Malaga-menn ósáttir en Börsungar fögnuðu markinu.
Andres Iniesta bætti við öðru marki Barcelona í byrjun seinni hálfleiks og innsiglaði um leið sigurinn en Börsungar fengu fjöldan allra færa til að bæta við án árangurs.
Kolólöglegt mark kom Börsungum á bragðið í sigri
