Stjarnan hefur samið við bandaríska leikmanninn Stefan Bonneau. Þetta kemur fram á karfan.is.
Leikmaðurinn lék áður með Njarðvík og gæti mætt sínum gömlu félögum í fyrsta leik, en hann lenti á Íslandi nú í morgun. Stjarnan og Njarðvík eigast við á fimmtudaginn.
„Þetta er þekkt stærð, leikmaður sem getur búið til hluti úr engu sem getur verið gagnlegt að setja inn í vissa leiki. Tímabililð er langt og ástæða þess að við bætum honum við er sú að hópurinn má ekki við miklum skakkaföllum þegar líður á mótið,“ sagði Hrafn Kristjánsson þjálfari Stjörnunar.
Bonneau lennti í því að slíta báðar hásinar þegar hann spilaði með Njarðvík og hefur lagt mikið á sig til að komast aftur í form.
„Samningurinn er með ákvæði í byrjun sem er einskonar reynslutími svo við getum skoðað hvernig líkamsástand hans er,“ sagði Hrafn, en Stjarnan er nú þegar með einn bandarískan leikmann innanborðs, Collin Pryor.
