Körfubolti

Green og Beal hent úr húsi eftir hörkuslagsmál | Myndband

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Slagsmál í NBA í nótt
Slagsmál í NBA í nótt vísir/getty
Ríkjandi meistarar Golden State Warriors unnu nauman sigur á Washington Wizards í NBA-deildinni í nótt þar sem lokatölur urðu 120-117.

Þeir Draymond Green og Bradley Beal tóku hins vegar takmarkaðan þátt í leiknum því þeir voru báðir sendir í sturtu skömmu fyrir hálfleik eftir að þeim lenti harkalega saman. Myndband af átökunum má sjá hér fyrir neðan.



Green er þekktur fyrir að láta öllum illum látum inn á körfuboltavellinum en hann var hundóánægður með að vera vikið af velli.

„Ég veit ekki til hvers er ætlast af mér þegar ég er laminn í tvígang. Manni er kennt sem krakki að maður eigi ekki að leyfa það. Hvað átti ég að gera? Ég á ákveðna sögu í deildinni og það er eina ástæðan fyrir því að ég var rekinn af velli.“

 

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×