IKEA fær á baukinn í Kína Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. október 2017 07:24 Það eru fleiri en Íslendingar sem fjölmenna við opnanir nýrra verslana. Þessi mynd er frá opnun fyrstu IKEA-verslunarinnar í Shangdong-héraði í ágúst síðastliðnum. Vísir/Getty
Húsgagnarisinn IKEA hefur beðist afsökunar á auglýsingu sem sýnd var í miðlum í Kína og farið hefur fyrir brjóstið á mörgum þar í landi. Í auglýsingunni má sjá móður skamma dóttur sína fyrir að mæta ekki með kærasta í matarboð til foreldranna. „Ekki kalla mig mömmu fyrr en þú mætir hingað með kærasta,“ segir hún áður en velklæddur ungur maður birtist með blómvönd. Kætast þá foreldrar óstjórnlega og draga fram margvíslegan borðbúnað og húsgögn - allt að sjálfsögðu úr IKEA. Auglýsingunni lýkur svo á því að foreldrarnir færa unga manninum skál fulla af hrísgrjónum á meðan dóttirin fylgist undrandi með furðulegu háttalagi foreldra sinna. Jafnréttissinnar í Kína gagnrýndu búðina fyrir ónærgætni í garð einhleypra kvenna, en þær hafa í áraraðir þurft að sæta margvíslegum þrýstingi í samfélagi sem leggur afar mikið upp úr hjónaböndum. IKEA hefur nú ákveðið að taka auglýsinguna úr sýningu. Hana má þó sjá hér að neðan.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Sjá meira