Fótbolti

ISIS notar mynd af Messi til þess að hræða þá sem ætla á HM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi er líklega ekki hrifinn af  ISIS-myndinni af sjálfum sér.
Messi er líklega ekki hrifinn af ISIS-myndinni af sjálfum sér. vísir/getty
Hryðjuverkasamtökin ISIS eru þegar byrjuð að hræða knattspyrnuáhugamenn sem ætla sér að fara á HM í Rússlandi næsta sumar.

Að þessu sinni notar ISIS sjálfan Lionel Messi í hræðsluáróðri sínum. Búið er breyta mynd af Messi þar sem hann situr í fangelsi og það blæðir úr öðru auga hans.





Þetta eru ekki fyrstu áróðusmyndirnar sem ISIS sendir frá sér tengdar HM.

Í síðustu viku birtu þeir unnu mynd af vígamanni ISIS fyrir utan knattspyrnuleikvang í Rússlandi. Þar er líka dínamít og klukka. Mynd sem þarfnast engrar útskýringar.

Þar er sagt að óvinir Allah verði Rússlandi og því þurfi að bregðast við.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×