Herra Fjölnir hættir á tveimur stöðum hjá félaginu en verður samt áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2017 19:30 Gunnar Már Guðmundsson. Vísir/Daníel
Gunnar Már Guðmundsson, leikjahæsti Fjölnismaðurinn í sögu úrvalsdeildar karla, hefur lagt fótboltaskóna á hilluna. Gunnar Már mun hætta að spila með Fjölni í Pepsi-deildinni en hefur tekið það að sér að vera aðstoðarmaður nýja þjálfarans Ólafs Páls Snorrasonar. Gunnar hefur spilað 125 leiki fyrir Fjölni í efstu deild eða fleiri en nokkur hann. Hann var einnig markahæsti maður félagsins í efstu deild en missti Þóri Guðjónsson upp fyrir sig í sumar. Þórir er kominn upp í 28 mörk en Gunnar Már skoraði sitt 27. og síðasta mark fyrir Fjölni í úrvalsdeild í sumar. Gunnar Már náði á sínum tíma að spila með Fjölnisliðinu í 3. Deild, 2. Deild, 1.deild og úrvalsdeild þegar liðið fór upp um þrjár deildir á árunum 2002 til 2008. Hann fékk í framhaldinu viðurnefnið Herra Fjölnir. Hann fór í víking til FH, Þórs og ÍBV eftir að Fjölnir féll úr deildinni haustið 2009 en snéri aftur í Grafarvoginn fyrir 2014 tímabilið og endaði ferilinn hjá uppeldisfélaginu. Gunnar verður áfram yfirþjálfari yngri flokka Fjölnis en hann hætti aftur á móti sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fjölni. Ólafur Páll tekur við Fjölni af Ágústi Þór Gylfason sem tók við liði Breiðabliks á dögunum. „Það er okkur Fjölnismönnum mikil ánægja að hafa fengið Gunna Má í þetta starf. Við bindum miklar vonir við samstarf hans og Óla Palla aðalþjálfara liðsins og þá ekki síst varðandi þjálfun og þróun ungra og efnilegra leikmanna félagsins. Á þessum tímamótum viljum við einnig þakka Gunna Má kærlega fyrir hans framlag inni á vellinum en hann á að baki 258 leiki með meistaraflokki Fjölnis. Einnig viljum við þakka honum fyrir vel unnin störf sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna,“ segir í fréttatilkynningu frá Fjölni.Gunnar Már Guðmundsson handsalar nýja samninginn.Mynd/Fjölnir
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Sjá meira