Glamour

Ný hugmynd að buxum kynnt til leiks í Tókýó

Ritstjórn skrifar
Glamour/Skjáskot
Nýjar hugmyndir í tískuheiminum eru alltaf skemmtilegar og spennandi, en við erum hins vegar ekki alveg vissar með þessa hér. 

Ungi hönnuðurinn Thibaut kynnti þessar ,,gallabuxur" til leiks á Amazon Fashion Week Tokyo, eða tískuvikunni í Tókýó, á dögunum. Það virðist sem svo þetta hafi einhverntímann verið gallabuxur, en það væri aldeilis búið að snyrta þær til og ekkert er eftir nema saumarnir. Rassvasarnir voru meira að segja teknir af. Afraksturinn er buxnastrengur með lafandi saumum niður skálmarnar, nei, við vitum ekki hvaða orð við eigum að nota til að lýsa þessum buxum

Við höldum að það verði mjög erfitt fyrir þessa flík að skapa sér sess í fataskápum heimsbyggðarinnar, enda mjög ópraktískt.



×