Glamour

Búið spil eftir 10 mánaða samband

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Tónlistarparið Selena Gomez og Weeknd eru hætt saman samkvæmt heimildum People.  Parið byrjaði saman fyrir 10 mánuðum síðan og hafa verið mikið í sviðljósinu síðan þá. 

Samkvæmt heimildarmanni People þá mun parið hafa verið að fara fram og tilbaka með samband sitt undanfarna mánuði en bæði eru þau með strembna stundaskrá í tónleikahaldi sem erfitt reyndist að púsla saman. 

Þetta hefur verið erfitt ár fyrir Gomez en í sumar gekkst hún undir nýrnaígræðslu og hefur verið hægt og rólega að koma sér aftur í vinnu. Það sem vakti athygli fjölmiðla vestanhafs var að Gomez sást um helgina með fyrrum kærasta sínum, Justin Bieber. Mögulega er kvikna aftur í gömlum glæðum?

Justin Bieber og Selena Gomez fyrir nokkrum árum síðan.


×