Pablo Punyed kvaddi ÍBV í gær og samdi við KR í dag | Beitir og Pálmi framlengdu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. nóvember 2017 16:25 Pablo Punyed, Beitir Ólafsson og Pálmi Rafn Pálmason með þeim Rúnari Kristinssyni og Kristni Kjærnested . Vísir/Ernir
Pablo Punyed skrifaði í dag undir þriggja ára samning við KR og mun spila með liðinu í Pepsi-deild karla í fótbolta næsta sumar. Markvörðurinn Beitir Ólafssson og miðjumaðurinn Pálmi Rafn Pálmason framlengdu einnig samning sinn við KR. Pálmi Rafn skrifaði undir tveggja ára samning en Beitir undir þriggja ára samning. Pablo Punyed er 27 ára miðjumaður frá El Salvador sem hefur spilað í íslenska boltanum síðan að hann var 22 ára gamall. Pablo Punyed er þriðji leikmaðurinn sem Rúnar Kristinsson fær til KR-liðsins eftir að hann tók aftur við þjálfun Vesturbæjarliðsins. Hinir tveir eru bakvörðurinn Kristinn Jónsson sem kom frá Breiðabliki og framherjinn Björgvin Stefánsson sem kom frá Haukum. Pablo Punyed varð lykilmaður á miðju Eyjaliðsins sem varð bikarmeistari í sumar eftir sigur á FH í úrslitaleiknum. ÍBV vann líka báða leiki sína á móti KR síðasta sumar, 3-1 sigur í Eyjum og 3-0 sigur á móti KR. Pablo Punyed hefur leikið 92 leiki í efstu deild og er með í þeim sex mörk og fimmtán stoðsendingar. Undanfarin tvö sumur hefur hann gefið níu stoðsendingar með ÍBV en hann er einnig með fimm sendingar að auki sem hafa átt stóran þátt í undirbúningi marka Eyjaliðsins. Pablo Punyed hefur spilað undanfarin sex tímabil á Íslandi og KR verður fimmta íslenska félagið sem hann spilaði með. Punyed kom hingað fyrst sumarið 2012 til að spila með Fjölni í 1. deildinni en fór síðan yfir í Fylki og lék með Árbæingum í Pepsi-deildinni 2013 sem var hann fyrsta tímabil í efstu deild á Íslandi. Punyed varð Íslandsmeistari með Stjörnunni sumarið 2014 og hann spilaði einnig með Garðabæjarliðinu sumarið eftir. Hann var síðan búinn að vera tvö tímabil í Eyjum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Sjá meira