„Guðbergur segir þá Konráð hafa séð um allt sem snýr að kvikmyndagerðinni og svo hafi þeir þremenningar hjálpast að með handritið. „Friðþór er með fróðustu mönnum um allt sem snýr að hernaðarbröltinu, þannig að við erum með réttar flugvélar á réttum stað og allt eins nákvæmt og vandað og hægt er,“ tekur Guðbergur fram.
Ísland gegndi mikilvægu hlutverki í varnaráætlunum bandalagsríkja NATO í norðurhöfum og herstöðin í Keflavík var í áratugi miðstöð kafbátaleitar og loftvarnaviðbúnaðar. Herliðið hafði aðsetur á landinu í 55 ár, frá 1951 til 2006 og var staðsett í afgirtri herstöð við Keflavíkurflugvöll.

Guðbergur er fæddur 1956 og man hluta þess tímabils sem herinn var hér. „Ég var á móti her í landinu og gæti trúað að við höfum verið í meiri hættu af því að hann var hér þegar kalda stríðið var upp á sitt versta. Þó var ég ekkert of upptekinn af þeim hugsunum í uppvextinum en man vel eftir því þegar almannavarnaflauturnar glumdu hér á þriggja mánaða fresti og svo voru leiðbeiningar um kjarnorkuvá í símaskránni lengi.“
Hvernig gekk ykkur að smala saman myndefninu? „Það gekk í sjálfu sér vel en það var tímafrekt því við þurftum að fá það víða að. Leituðum í öllum söfnum sem okkur duttu í hug, bæði innan lands og utan. Friðþór vann sem upplýsingafulltrúi varnarliðsins um árabil og samskiptin við bandaríska herinn voru í gegnum hann. Þannig komumst við inn í öll söfn í Bandaríkjunum og þar er búið að gramsa í öllu sem hægt er að gramsa í. Við erum því með mikið af áður óbirtu myndefni.“

Spurður hvort þeir félagar fari eitthvað ofan í ástamál eða önnur persónuleg mál, svarar Guðbergur: „Við erum með nokkrar sögur, ekki kannski mikið um ástamál, en þó kemur ýmislegt fram um samskipti hermanna og Íslendinga, bæði á menningar-og félagslegu sviði. Þetta er löng saga og hún er ekki eins á öllum tímabilum.
Fyrst voru hermennirnir mest einhleypir strákar í verkamannavinnu, þeir voru mjög einangraðir og fengu bara að fara út af svæðinu á Miðnesheiði á miðvikudögum. Seinna fluttu fjölskyldur á svæðið, það fór lítið fyrir þeim en þær nutu meira frelsis en herinn gerði í upphafi. Við minnumst líka aðeins á radarstöðvarnar úti á landi og sýnum mest frá þeirri sem var á Hornströndum. Meiri gat nú einangrunin varla orðið en þar.“
Þulur myndarinnar er Sigurþór Heimisson leikari. Framleiðandi er Ljósop ehf. og meðframleiðandi KAM film.