Systkinaerjum lauk með blóðsúthellingum Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. desember 2017 06:27 Tomioka Hachimangu-hofið er þekkt kennileiti í japönsku höfuðborginni. Vísir/Getty
Þrennt var myrt og einn særður við frægt Shinto-hof í Tókýóborg í nótt í því sem sagðar eru vera erfðadeilur. Hinn grunaði er talinn hafa myrt systur sína, sem var hæstráðandi í hofinu, er hún steig út úr bíl sínum. Ökumaður hennar særðist jafnframt í árásinni. Bróðirinn er síðar sagður hafa myrt aðra konu, sem aðstoðaði hann við morðið á systur sinni, áður en hann svipti sig svo sjálfur lífi. Blóðugt samúræjasverð fannst á vettvangi. Að sögn þarlendra miðla eru morðin hrottalega birtingarmynd áralangra deilna milli systkinanna um hver fengi að taka við stjórn hofsins. Bróðirinn, sem sagður er heita Shigenaga Tomioka, tók við stjórnendastöðunni af föður sínum á tíunda áratugnum en var svo rekinn árið 2001. Þá tók faðir hans aftur við stöðunni og gerði dóttur sína að næstráðanda. Í upphafi tíunda áratugarins er Shigenaga sagður hafa hótað systur sinni ítrekað og sent henni bréf með hvers kyns ógnunum. Ætlaði hann meðal annars að „senda hana til vítis,“ er fram kemur á vef Japan Times.Þegar faðir þeirra fór á eftirlaun árið 2010 tók dóttir hans við keflinu - sem reitti bróðurinn til ómældrar reiði. Hof fjölskyldunnur, Tomioka Hachimangu-hofið í Tókýó, er víðfrægt í heimalandinu - ekki síst fyrir að hýsa eina af stærstu árlegu hátíðahöldum borgarinnar.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Sjá meira