Jóhann: Ég er með skítinn í buxunum útaf þessu 7. desember 2017 21:06 Jóhann Þór ræðir við sína menn. vísir/ernir „
Við vorum vandræðalega slakir í fyrri hálfleik. Við höfum ekki náð takti varnarlega í vetur og ég myndi segja að við höfum náð ákveðnum botni í fyrri hálfleik. Það vantar þessi grunnígildi sem þurfa að vera í góðri liðsvörn, það var skárra í seinni. Þetta var ljótur sigur og við áttum þetta ekki skilið,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur eftir eins stig sigur á Val í Grindavík í kvöld. Sigurkarfa Grindvíkinga skoraði Dagur Kár Jónsson þegar 0,44 sekúndur voru eftir á klukkunni en þá höfðu Grindvíkingar ekki verið yfir síðan í 2.leikhluta. „Við tökum þetta auðvitað og það er einn leikur eftir fyrir jól. Ég hef sagt í viðtölum að ég hafi ekki áhyggjur af þessu en ég er með skítinn í buxunum yfir þessu, það verður bara að viðurkennast.“ Valsliðið spilaði afar grimmt á heimamenn og börðust eins og ljón allan leikinn. „Valsliðið er hörkugott, mjög vel þjálfað og til fyrirmyndar hvernig þeir nálgast sinn leik. Mínir menn geta tekið sér þetta til fyrirmyndar. Hver einasti maður hjá þeim er á fullu allan tímann og hefur fulla trú á skipulaginu. Það er aðdáunarvert að fylgjast með þessu, bætti Jóhann við og sagði að aðaláherslan fyrir leikinn gegn Þór Akureyri yrði að laga varnarleikinn. „Við erum með allt lóðrétt, eða allt lóðbeint „Team Fannar Ólafs“ niður um okkur,“ sagði Jóhann um varnarleikinn og vitnaði þér í Fannar Ólafsson sérfræðing í Dominos körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport. „Síðan í nóvember hefur þetta verið svona og það hefur lítið gengið. Við þurfum að finna einhverjar aðrar leiðir. Það er klárt,“ sagði Jóhann Þór að lokum.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun: Grindavík - Valur 90-89 │ Grindvíkingar stálu sigrinum í lokin Grindavík vann eins stigs sigur á Val í 10.umferð Dominos deildar karla í kvöld. Dagur Kár Jónsson skoraði sigurkörfu heimamanna þegar 0,44 sekúndur voru eftir. 7. desember 2017 21:45 Mest lesið Þóttist vera með krabbamein með iPhone snúru upp í nefinu Sport Sveindísi var enginn greiði gerður Fótbolti Féllu á lyfjaprófi vegna gúmmíkurls í gervigrasinu Fótbolti Heppni hafi skilað sigri á „of árásargjörnum Íslendingum“ Fótbolti Jón Dagur gagnrýnir sérfræðinga RÚV: „Regla að þú gast ekkert eða veist ekkert?“ Fótbolti Landsliðskonurnar neita að æfa Fótbolti Finna stuðning hver hjá annarri: „Fólki má bara finnast það sem það vill“ Fótbolti Heitt undir Þorsteini: Þetta eru enn ein vonbrigðin núna Fótbolti Ungur Njarðvíkingur fékk hjálp frá systur sinni til að heiðra minningu Jota Fótbolti Kláraði sjötíu pylsur á tíu mínútum Sport Fleiri fréttir Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Sjá meira
Umfjöllun: Grindavík - Valur 90-89 │ Grindvíkingar stálu sigrinum í lokin Grindavík vann eins stigs sigur á Val í 10.umferð Dominos deildar karla í kvöld. Dagur Kár Jónsson skoraði sigurkörfu heimamanna þegar 0,44 sekúndur voru eftir. 7. desember 2017 21:45