Alveg sama hvar vegurinn kemur, bara að þeir byrji Kristján Már Unnarsson skrifar 11. desember 2017 22:15 Hafrós Huld Einarsdóttir, bóndi í Fremri-Gufudal. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Bændur í Gufudalssveit eru opnir fyrir öðrum lausnum í stað vegar um Teigsskóg, bæði jarðgöngum og þverun Þorskafjarðar með sjávarfallavirkjun. Rætt var við heimafólk í Gufudalssveit í fréttum Stöðvar 2 og í þættinum „Um land allt“ á Stöð 2 í kvöld. Þegar við hittum Skálanesbændur í heyskap á Melanesi í sumar var þeirra óskaleið að Vestfjarðavegur kæmi þvert yfir mynni Þorskafjarðar. „Við viljum fara niður af hálsunum. Það er aðalmálið,“ segir Andrea Björnsdóttir, þroskaþjálfi og bóndi á Skálanesi.Hjónin á Skálanesi, þau Sveinn Hallgrímsson og Andrea Björnsdóttir. Fjær sést yfir mynni Þorskafjarðar yfir í Reykhólasveit.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.Þau á Skálanesi vilja að Vegagerðin taki höndum saman með fleiri aðilum um sjávarfallavirkjun. „Það er búið að reikna út að rafmagnið sem myndi fást úr þessari virkjun myndi duga fyrir notkun á öllum Vestfjörðum,“ segir Sveinn Hallgrímsson, bóndi á Skálanesi. Þau Styrmir Sæmundsson og Jóhanna Ösp Einarsdóttir í Fremri-Gufudal eru sama sinnis. „Ef við hefðum valið í upphafi hefðum við sennilega valið að fara frá Skálanesi og beint yfir á Reykjanes með tengingu inn á Reykhóla. Það er styst fyrir krakkana í skólann,“ segir Jóhanna Ösp, tómstundafulltrúi í Fremri-Gufudal. Styrmir Sæmundsson og Jóhanna Ösp Einarsdóttir í Fremri-Gufudal.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.Láglendisvegur sé þó aðalatriðið. „Ég vil bara að þeir byrji. Mér er svona nokkuð sama hvar þeir fara, - bara að þeir byrji,“ segir Jóhanna. Mæðurnar ungu og systurnar í Fremri-Gufudal segjast vera á nálum að senda börnin í skólabílnum yfir Hjallaháls í skafrenningi og hálku. „Mér er alveg sama hvert vegurinn fer, - bara að það komi vegur sem fyrst,“ segir Hafrós Huld Einarsdóttir, bóndi í Fremri-Gufudal.Veglínur sem Vegagerðin skoðaði sem framtíðarlegu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit.Kort/Vegagerðin.Bændum í Djúpadal líst best á jarðgöng undir Hjallaháls og veg um Ódrjúgsháls. „Nýta efnið úr göngunum til að þvera firðina. Minnsta umhverfisraskið og örugglega mesta framtíðin,“ segir Leifur Z. Samúelsson, bóndi í Djúpadal. Leifur Samúelsson, bóndi í Djúpadal.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.Þau í Djúpadal segja að jarðgöng myndu stytta leiðir mest innan sveitarinnar. „Aftur á móti ef það kæmi vegur um Teigsskóg, þá lengist leiðin, eins og fyrir börnin okkar í skólann, bara töluvert. Við leyfum okkur náttúrlega bara að horfa á það líka,“ segir Guðrún Samúelsdóttir, bóndi í Djúpadal. Djúpadalsbændur telja vel hægt að leggja heilsársveg um Ódrjúgsháls. „Ódrjúgsháls er ekki nema 170 metra hár. Ég held að það sé ekki vandamál,“ segir Leifur.Guðrún Sigfríður Samúelsdóttir, bóndi í Djúpadal.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.„Láglendisvegur er náttúrlega skásti kosturinn. Maður á ekkert að vera að príla upp á fjöll ef það þarf ekki,“ segir Einar Hafliðason, bóndi í Fremri-Gufudal. „Ég er alveg á þeirri skoðun að það hefði átt að gera göng. Svo er náttúrlega sagt að það sé fjarstæða af því að það sé svo dýrt,“ segir Svandís Reynisdóttir, bóndi í Fremri-Gufudal. „Það er alltaf þras með Teigsskóginn, sko,“ segir Einar.Svandís Reynisdóttir og Einar Hafliðason, bændur í Fremri-Gufudal.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.Þau Svandís og Einar rifja upp að þeim hafi í fyrstu ekkert litist á vegagerð um Skálanes og Klettsháls. Svo hafi vegirnir fallið vel inn í landslagið þegar búið var að ganga frá öllu. „Eins og í vestanverðum Klettshálsinum. Þetta var rosalegt þegar þeir voru að sprengja klettabeltin og ryðja burtu skóginum,“ segir Svandís. „Nú er skógurinn að byrja að vaxa upp í vegkantana. Það yrði eins með Teigsskóg,“ segir Einar. „Það þarf ekkert endilega að vera mikil náttúruspjöll,“ bætir Svandís við. „En við bara vonum að við fáum sem fyrst veg, hvar sem hann verður.“ Fjallað var um Gufudalssveit í þættinum „Um land allt“ á Stöð 2 í kvöld. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Ísafjarðarbær Teigsskógur Um land allt Tengdar fréttir Segir óskiljanlegt að Teigsskógur hafi ekki verið tekinn eignarnámi Þetta segir Kjartan Gunnarsson lögmaður, sem sjálfur hefur mátt þola eignarnám, en hann hefur sem jarðeigandi á Rauðasandi kynnst vel þeim aðstæðum sem Vestfirðingar búa við í vegamálum. 23. október 2017 18:30 Vernd Teigsskógar gæti kostað hreppinn milljarða Reykhólahreppur stendur frammi fyrir því að þurfa að greiða 4,5 milljarða króna velji sveitarstjórnin jarðgöng undir Hjallaháls fremur en veg um Teigsskóg. 14. júní 2017 21:45 Sjávarfallavirkjun til að hlífa Teigsskógi Sjávarfallavirkjun þvert yfir Þorskafjörð, sem jafnframt yrði brú, er til umræðu sem sáttaleið í deilum um framtíðarlegu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit í Reykhólahreppi. Erfiðustu hindranirnar í vegi þess að byggðirnar á sunnanverðum Vestfjörðum tengist öðrum landshlutum með nútímavegi eru Hjallaháls og Ódrjúgsháls. 30. ágúst 2011 21:00 Jarðgöng sem hlífa Teigsskógi kosta 4,5 milljarða aukalega Vegagerðin hyggst óska eftir framkvæmdaleyfi í Teigsskógi, þrátt fyrir neikvætt álit Skipulagsstofnunar í dag. 28. mars 2017 19:08 Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Baldur til Eyja Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Sjá meira
Segir óskiljanlegt að Teigsskógur hafi ekki verið tekinn eignarnámi Þetta segir Kjartan Gunnarsson lögmaður, sem sjálfur hefur mátt þola eignarnám, en hann hefur sem jarðeigandi á Rauðasandi kynnst vel þeim aðstæðum sem Vestfirðingar búa við í vegamálum. 23. október 2017 18:30
Vernd Teigsskógar gæti kostað hreppinn milljarða Reykhólahreppur stendur frammi fyrir því að þurfa að greiða 4,5 milljarða króna velji sveitarstjórnin jarðgöng undir Hjallaháls fremur en veg um Teigsskóg. 14. júní 2017 21:45
Sjávarfallavirkjun til að hlífa Teigsskógi Sjávarfallavirkjun þvert yfir Þorskafjörð, sem jafnframt yrði brú, er til umræðu sem sáttaleið í deilum um framtíðarlegu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit í Reykhólahreppi. Erfiðustu hindranirnar í vegi þess að byggðirnar á sunnanverðum Vestfjörðum tengist öðrum landshlutum með nútímavegi eru Hjallaháls og Ódrjúgsháls. 30. ágúst 2011 21:00
Jarðgöng sem hlífa Teigsskógi kosta 4,5 milljarða aukalega Vegagerðin hyggst óska eftir framkvæmdaleyfi í Teigsskógi, þrátt fyrir neikvætt álit Skipulagsstofnunar í dag. 28. mars 2017 19:08