Vonarfjall reyndist hæst Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. desember 2017 06:23 Vonarfjall er um helmingi hærra en Hvannadalshnjúkur, hæsta fjall Íslands. BAS
Nýjar mælingar vísindamanna hafa leitt í ljós að Mount Hope, sem íslenska mætti sem Vonarfjall, er hæsta fjall breska heimsveldsins. Fjallið, sem rís upp úr landssvæðinu sem Bretar gera tilkall á Suðurskautinu, reyndist vera um 50 metrum hærra en Mount Jackson sem talið hefur verið hæst til þessa. Vonarfjall er alls um 3239 metrar á hæð en Jackson 3184 er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins. Mount Jackson er jafnframt á Suðurskautinu. Ákveðið var að ráðast í hinar nýju mælingar til að slá á ótta flugmanna sem hafa lýst áhyggjum af öryggi sínu er þeir fljúga yfir Hvítu heimsálfuna. „Það eru engir vegir á Suðurskautinu svo að við verðum að fljúga - og ef þú ert að fljúga flugvélum þá er mjög mikilvægt að vita hvar fjöllin eru og hvað þau eru há,“ útskýrir Dr. Peter Fretwell í samtali við BBC. Talið er að rekja megi nokkur flugslys sem orðið hafa á Suðurskautinu á síðustu árum til lélegra korta. Hinar nýju mælingar varpa ekki aðeins skýrara ljósi á hæð fjalla heimsálfunnar heldur hafa mörg fjöll verið „færð“ til að samsvara betur raunveruleikanum - sum um næstum 5 kílómetra. Mount Vinson, um 4892 metrar á hæð, er þó áfram langhæsti tindur heimsálfunnar.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Sjá meira