Innlendur myndaannáll: Árið sem íslenska þjóðin sameinaðist í sorg Samúel Karl Ólason skrifar 28. desember 2017 09:45 Það hefur ansi mikið verið um að vera á litla Íslandi á árinu sem er nú að klárast. Vísir
Það hefur ansi mikið verið um að vera á litla Íslandi á árinu sem er nú að klárast. Stjórnmálin hafa verið umfangsmikil, eins og undanfarin ár, og ríkisstjórnir komu og fóru. Mótmæli, þingslit, kosningar, stjórnarmyndunarviðræður og slíkt hefur verið til umræðu í öllum heitum pottum á árinu. Það sama má segja um leitina að Birnu Brjánsdóttur sem heltók þjóðina í byrjun árs um sama leyti og ný ríkisstjórn tók við völdum.Sjá einnig: Innlendar fréttir ársins 2017: Kynferðisbrot, knattspyrna og kosningar Hér að neðan verður stiklað á stóru með myndum sem ljósmyndarar Fréttablaðsins og Vísis tóku á árinu sem nú er að líða. Hægt er að fletta myndasafninu til að skoða myndirnar.Aðili fluttur í gæsluvarðhald vegna dauða Arnars Jónssonar Aspar í júní.Vísir/EyþórKatrín Jakobsdóttir les #Metoo sögur í Borgarleikhúsinu í desember.Vísir/StefánEining úr Berlínarmúrnum var flutt til Íslands í ár og komið fyrir hjá Höfða í Reykjavík. Listamaðurinn Jakob Wagner málaði á vegginn og var hann afhjúpaður í tengslum við þjóðhátíðardag Þýskalands í október.Vísir/Ernir86 starfsmönnum HB Granda á Akranesi var sagt upp á árinu og hætti fyrirtækið botnfiskvinnslu þar.Vísir/AntonH&M opnaði með pomp og prakt í Smáralindinni í sumar.Vísir/EyþórSigmundur Davíð Gunnlaugsson stofnaði Miðflokkinn á árinu og fékk flokkurinn sjö menn á þing.Vísir/AntonViljálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður, ræðir við Ólaf Ólafsson á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í maí.Vísir/EyþórBjarni Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, sleit þingi í september og boðaði til nýrra kosninga. Hér er hann að koma af fundi með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta.Vísir/AntonLogi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, hress á kosningavöku flokksins í október.Vísir/AntonSigríður Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, mætir á þingflokssfund Sjálfstæðisflokksins í september.Vísir/VilhelmGuðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tók á móti sýrlenskum flóttamönnum í byrjun árs.Vísir/EyþórUrður Bergsdóttir, Áróra Bergsdóttir, Eva Vala Guðjónsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson. Bergur segir að sú staðreynd að ríkisstjórnin hafi fallið vegna mála sem tengjast uppreist æru kynferðisbrotamanna sýni hversu alvarlegt málið hafi verið.Vísir/StefánÞjóðaröryggisráð Íslands kom saman í fyrsta sinn á árinu.Vísir/EyþórFrá réttarhöldum yfir Thomas Moller Olsen, skipverja Polar Nanoq, sem sakfelldur var fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur.Vísir/AntonBjört Framtíð, Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn mynduðu ríkisstjórn í byrjun árs.Vísir/ErnirMikið hefur gengið á við bensíndælu Costco á árinu.Vísir/EyþórSigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benedikttson þegar nýir ráðherrar fengu afhenta lykla að ráðuneytum sínum í byrjun árs.Vísir/VilhelmSigurlaug Hreinsdóttir, móðir Birnu Brjánsdóttur, ræðir við fjölmiðla.Vísiri/AntonFormenn flestra flokka í kosningum í október. Jón Þór Ólafsson og Lilja Alfreðsdóttir voru þarna í forsvari fyrir sína flokka; Pírata og Framsóknarflokkinn.Vísir/ErnirLilja Alfreðsdóttir og Inga Sæland bregða á leik í kosningabaráttunni.Vísir/ErnirFrá útför Birnu Brjánsdóttur í Hallgrímskirkju þann 3. febrúar.Vísir/AntonFerðamenn í sjónum í Reynisfjöru. Í janúar lést þýsk kona þar skammt frá, í Kirkjufjöru. Margir aðrir ferðamenn voru hætt komnir á þessum slóðum á árinu.Vísir/VilhelmKatrín Jakobsdóttir á Bessastöðum.Vísir/EyþórEldri borgarar og örykjar funduðu með þingmönnum. Hér má sjá Berg Þorra Benjamínsson, gjaldkera Öryrkjabandalags Íslands.Vísir/StefánTryggvi Hansen, sem býr í skóglendi í útjaðri borgarinnar, þáði fjóra pelsa frá dýraverndunarsamtökunum PETA. Þrátt fyrir að búið væri að merkja þá með litum. Stóra pelsamálið var umfangsmikið í byrjun árs.Vísir/VilhelmFjöldi björgunarsveitarmanna tóku þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur eftir að hún hvarf í byrjun árs.Vísir/EyþórMargir skátar komust í hann krappan í sumar þegar alvarleg veikindi komu upp í sumarbúðum á Úlfljótsvatni.Vísir/EyþórGjaldeyrishöft voru afnumin í mars.Vísir/EyþórFrá mótmælum á Austurvelli eftir að Robert Downey fékk uppreist æru.Vísir/EyþórLeitað að Birnu Brjánsdóttur í sjónum í Hafnarfirði.Vísir/EyþórFrá minningarathöfn við Reykjavíkurtjörn eftir að Klevis Sula var stunginn til bana á Austurvelli í desember.Vísir/EyþórÖrtröð í Leifsstöð vegna verkfalls flugvirkja Icelandair í desember.Vísir/EyþórFlutningabíll með 114 sláturgrísi valt í Svínahrauni í október.Vísir/StefánAflífa þurfti einhverja grísi á staðnum eftir að bíllinn valt.Vísir/StefánSveinn Gestur Tryggvason var í desember dæmdur til sex ára fangelsisvistar fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða Arnars Jónssonar Aspar. Líkamsárásin átti sér stað á Æsustöðum í Mosfellsdal í byrjun júní.Vísir/EyþórFrá stjórnarmyndunarviðræðum Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.Vísir/VilhelmFjöldi fólks gekk um Hafnarfjörð að leita að Birnu Brjánsdóttur. Hér eru þau Leó, Unnur Birna, Óliver og Rakel að leita í iðnaðarhverfinu í Hafnarfirði.Vísir/EyþórSkrifað undir stjórnarsáttmálann í Listasafni Íslands í lok nóvember.Vísir/EyþórGert var hlé á stjórnarmyndunarviðræðum á heimili Sigurðar Inga og Elsu á Syðra Langholti til að gæða sér á gómsætri flatböku úr golfskálabistroinu Seli.Vísir/ErnirRokið getur verið mikið á Íslandi eins og sést hér á mynd sem var tekin fyrir utan Hörpu í lok apríl.Vísir/ErnirTomas Müller pg tveir aðrir voru handteknir þegar togaranum Polar Nanoq var siglt til hafnar í Hafnarfirði undir stjórn sérsveitar ríkislögreglustjóra.Vísir/AntonFrá minningarathöfn vegna dauða Birnu Brjánsdóttur.Vísir/ErnirFjöldi Íslendinga gengu um miðbæinn til minningar Birnu.Vísir/ErnirLogi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðjón S. Brjánsson, þingmenn Samfylkingarinnar, á göngu með Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri grænna.Vísir/VilhelmFjölmenn mótmæli fóru fram á Austurvelli í september vegna brottvísunar stúlknanna Haniye og Mary og fjölskyldna þeirra.Vísir/VilhelmUmtalsverðar tafir mynduðust á Leifsstöð vegna verkfalls flugvirkja Icelandair.Vísir/VilhelmÞegar árið byrjaði voru sjómenn í verkfalli. Þeir samþykktu svo nýjan samning í febrúar.Vísir/VilhelmRannsóknarskýrsla um sölu Búnaðarbankans kynnt. Hér eru þau Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, og Kjartan Bjarni Björgvinsson, formaður rannsóknarnefndarinnar.Vísir/VilhelmGuðni Th. Jóhannesson, forseti, og eiginkona hans Eliza heimsóttu Barnaspítala Hringsins á 60 ára afmæli hans.Vísir/EyþórÍslendingar fjölmenntu til Hollands til að styðja íslenska kvennalandsliðið á Evrópumótinu í fótbolta í júlí.Vísir/VilhelmSíðasta haftið var sprengt í Vaðlaheiðargöngum á árinu.Vísir/Auðunn
Árslistar Birtist í Fréttablaðinu Fréttir ársins 2017 Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira