Verðgildi rafmyntarinnar Bitcoin hefur tekið skarpa dýfu í þessari viku en þegar þessi frétt er skrifuð nemur einn Bitcoin-aur 13.949 Bandaríkjadölum (tæplega 1,5 milljón kr.). Þetta kemur fram á vef Financial Times.
Gífurlegar sveiflur urðu á mörkuðum í morgun en verð hrundi um tæp 20 prósent, úr 15.600 dollurum (tæplega 1,7 milljón kr.) niður í 12.560 dollara (rúmlega 1,3 milljón kr.).
Gengi Bitcoin hefur á þessu ári tekið stórfelldum hækkunum en í byrjun árs var verðgildi hverrar myntar í kringum þúsund dollara. Síðasta sunnudag fór gengið upp í 20 þúsund dollara (rúmlega 2,1 milljón kr.) en það er hæsta verð sem fengist hefur fyrir Bitcoin. Lækkunin nam því 38 prósentum þegar verst lét.
Bitcoin var upphaflega kynnt af Satoshi Nakamoto árið 2009. Ólíkt hefðbundinni mynt er bitcoin ekki gefið út af banka eða einstaklingum en hægt er að eignast bitcoin-aura með svokallaðri námavinnslu (e. mining) á netinu eins og um verðmætan málm væri að ræða.
Bitcoin tekur skarpa dýfu eftir hraðan vöxt

Tengdar fréttir

Bíræfnir Bitcoin-þjófar stórgræða á gengishækkun dagsins
Tölvuhakkarar höfðu með sér á brott 4.700 Bitcoin aura í gærnótt frá slóvenska fyrirtækinu NiceHash. Gengi Bitcoin hækkaði síðan á ofurhraða í dag.

Winklevoss tvíburarnir stórgræða á bitcoin
Tyler og Cameron Winklevoss, bræðurnir sem stefndu Mark Zuckerberg, fjárfestu á sínum tíma í bitcoin. Hlutur þeirra er talinn vera um 104 milljarðar króna í dag en gengi bitcoin hefur hækkað gríðarlega undanfarin ár.

Bitcoin tekur skarpa dýfu
Gengi rafmyntarinnar Bitcoin gagnvart Bandaríkjadal tók skarpa dýfu, alls um sextán prósent, í gær eftir mikinn uppgang undanfarinna daga.