Forsætisráðherrann segir árásina einangrað tilfelli Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. desember 2017 06:49 Maðurinn ók eftir fjölfarinni götu í miðborg Melbourne. Vísir/EPA
Ekki er talið að maður sem ók bifreið sinni á gangandi vegfarendur í áströlsku borginni Melbourne í gær hafi nokkur tengsl við alþjóðleg hryðjuverkasamtök. Forsætisráðherra landsins, Malcolm Turnbull, segir að þó svo að árásin hafi verið „hræðilegur glæpur“ sé um „einangrað tilfelli“ að ræða. Að minnsta kosti 19 eru slasaðir en ökumaðurinn bílsins keyrði á vegfarendur við Flinders Street sem er fjölfarin gata í miðborg Melbourne.Sjá einnig: Ekið á gangandi vegfarendur í miðborg MelbourneÁstralska lögreglan segir manninn eiga við geðræn vandamál að stríða og að hann hafi misnotað vímuefni. Hann hafi þó ekki haft nein tengsl við glæpasamtök. Maðurinn er ástralskur ríkisborgari af afgönskum uppruna. Lögreglan segir ástæðu árásarinnar vera upplifun mannsins af þeim fordómum sem múslimar verði fyrir í Ástrlíu. Rannsókn málsins heldur áfram. Hið minnsta 9 erlendir ferðamenn voru meðal hinna særðu. Þá slasaðist jafnframt eitt barn en á vef breska ríkisútvarpsins er líðan þess sögð stöðug. Annar maður var handtekinn á vettvangi árásarinnar en sá var að taka upp á síma sinn og var með þrjá hnífa í fórum sínum. Hann er ekki sagður tengjast ökumanni bílsins né árásinni.
Tengdar fréttir Segja árásina ekki tengda hryðjuverkum Maðurinn sem ók á hóp fólks í Melbourne er sagður eiga við geðræn vandamál að stríða. 21. desember 2017 11:53 Ekið á gangandi vegfarendur í miðborg Melbourne Lögreglan í Melbourne hefur handtekið tvo menn, annan þeirra ökumann hvíts jeppa sem ók á gangandi vegfarendur í Melbourne upp úr klukkan 17 að staðartíma. 21. desember 2017 07:30 Mest lesið Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Innlent Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Innlent Fleiri fréttir Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Sjá meira
Segja árásina ekki tengda hryðjuverkum Maðurinn sem ók á hóp fólks í Melbourne er sagður eiga við geðræn vandamál að stríða. 21. desember 2017 11:53
Ekið á gangandi vegfarendur í miðborg Melbourne Lögreglan í Melbourne hefur handtekið tvo menn, annan þeirra ökumann hvíts jeppa sem ók á gangandi vegfarendur í Melbourne upp úr klukkan 17 að staðartíma. 21. desember 2017 07:30