Dæmdur í sautján ára fangelsi fyrir morðið á Bakken Atli Ísleifsson skrifar 3. janúar 2018 10:25 Lík hins 49 ára Nils Olav Bakken fannst í Søndre Land þann 3. september 2016. Norska lögreglan
Dómstóll í Noregi dæmdi í morgun 36 ára karlmann í sautján ára fangelsi fyrir morðið á hinum 49 ára Nils Olav Bakken í september 2016. Bakken fannst látinn og lík hans illa brennt á skógarvegi í sveitarfélaginu Søndre Land, um hundrað kílómetrum norður af Ósló. Dómstóllinn (Eidsivating lagmannsrett) mildaði þar með dóm þingréttarins yfir Odd Raymond Olsen úr tuttugu árum í sautján. Verdens Gang greinir frá þessu. Málið vakti mikla athygli í Noregi á sínum tíma, en lögregla handtók þrjá vegna málsins tveimur mánuðum eftir að lík Bakken fannst. Mæðgin, 44 ára kona og tvítugur sonur hennar, voru einnig ákærð í málinu en voru bæði sýknuð af ákæru um morð. Þau voru hins vegar fundin sek af ákæru um líkamsárás og hlaut móðirin tveggja ára dóm en sonurinn fimm ára.Var á lífi þegar kveikt var í honum Í dómsgögnum kemur fram að rannsókn hafi leitt í ljós að Bakken hafi verið ráðinn bani á sama stað og lík hans fannst. Þá hafi hann verið á lífi þegar kveikt var í honum og lést hann af völdum blæðingar og brunasára. Í dómsorðum kemur fram að morðið hafi verið skipulagt og að um aftöku á varnarlausri manneskju hafi verið að ræða.Konan viðurkenndi að þrímenningarnir hafa ætlað sér að ganga á Bakken vegna ásakana um að hann hafi brotið á manneskju sem tengdist þeim.
Norðurlönd Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira