Öruggasta árið í farþegaflugi frá upphafi Samúel Karl Ólason skrifar 2. janúar 2018 10:44 Í gær voru alls 792 dagar liðnir frá því að minnst hundrað manns dóu í sama flugslysinu og er það met. Vísir/AFP
Alls urðu tíu slys í farþegaflugi í fyrra og alls létust 44 farþegar og 35 á jörðu niðri. Það gerir árið 2017 það öruggasta í farþegaflugi frá upphafi. Bæði þegar kemur að fjölda slysa og fjölda dauðsfalla. Þetta kemur fram í samantekt Aviation Safety Network, sem heldur utan um flugslys á heimsvísu.Talið er að farþegaflug á heimsvísu hafi verið um 36.800.000 á árinu og því er slysatíðnin einn á móti 7.360.000. Engin farþegaþota brotlenti á árinu. Í gær voru alls 792 dagar liðnir frá því að minnst hundrað manns dóu í sama flugslysinu og er það met. Í umfjöllun ASN segir að árið 2016 hafi 16 slys orðið og í þeim hafi 303 dáið. Meðaltal síðustu fimm ára eru 17 slys og 495 dauðsföll.Samkvæmt frétt CNN hefur flugslysum farið fækkandi frá árinu 1992. Það hafi gerst vegna betri tækni, véla, betri þjálfunar flugmanna og vegna breytinga á reglum varðandi flug.Tölurnar breytast þó aðeins þegar flugslys innan herja heimsins og einkaflug eru talin með. Þá fjölgar slysunum í 24 og 230 dóu. Þær tölur er þó einnig með þeim lægstu í sögunni. Af þeim 230 sem dóu í flugslysum á árinu voru 74 prósent um borð í flugvélum herja.
Fréttir af flugi Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Fleiri fréttir Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Sjá meira