Kærasti dómsmálaráðherrans tekinn fyrir ölvunarakstur Atli Ísleifsson skrifar 12. janúar 2018 11:33 Søren Pape Poulsen er formaður danska Íhaldsflokksins og hefur gegnt embætti dómsmálaráðherra frá nóvember 2016. Vísir/Getty
Kærasti danska dómsmálaráðherrans Søren Pape Poulsen var nýverið tekinn fastur af lögreglu vegna ölvunaraksturs. Hann mældist með 1,25 prómill í blóðinu. Pape greinir frá málinu á Facebook-síðu sinni. „Það er enginn vafi um það að þetta er mjög alvarlegt mál. Það er óverjandi að keyra undir áhrifum og getur haft miklar afleiðingar í för með sér. Nú verður sambýlismaður minn að taka út sína refsingu eins og aðrir. Afstaða mín til laga og reglna er sú sama og hún var í gær,“ segir ráðherrann. Pape Poulsen er formaður danska Íhaldsflokksins og hefur gegnt embætti dómsmálaráðherra frá nóvember 2016 þegar fulltrúar Íhaldsflokksins og Frjálslynda bandalagsins (LA) tóku sæti í ríkisstjórn Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra og formanns Venstre. Íhaldsflokkurinn og LA höfðu áður varið minnihlutastjórn Venstre vantrausti, ásamt Danska þjóðarflokknum.Í embættistíð sinni hefur Pape hert ýmis lög og reglur. Þannig missa menn ökuréttindi í þrjú ár ef þeir aka bíl og mælast með 1,2 til 2,0 prómill í blóðinu.
Norðurlönd Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira