Heitustu einhleypu konur landsins Stefán Árni Pálsson skrifar 12. janúar 2018 10:30 Heitustu konur landsins eru margar einhleypar.
Fegurð íslenskra kvenna er eitthvað sem við Íslendingar erum stoltir af og án efa eru íslenskar konur þær fallegustu í heiminum. Í þrígang höfum við til að mynda unnið keppnina um fegurstu konu heims. Í síðustu viku var heljarinnar yfirferð á heitustu piparsveinum landsins og tók sérstök dómnefnd fréttastofunnar saman fallega karlmenn sem eiga það sameiginlegt að vera einhleypir. Nú er aftur á móti komið að eftirsóttustu einhleypu konum landsins. Þær konur sem hér eru nefndar sérstaklega eiga það sammerkt að vera á lausu og þykja eftirsóttar sem slíkar. Hér fyrir neðan fer listi yfir einhleypar og sjóðheitar konur, þær sem þykja flottastar í dag að mati dómnefndar Vísis. Saturdaynight vibes A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir (@sunnevaeinarsd) on Jan 6, 2018 at 10:23am PSTSunneva Eir Einarsdóttir – Hér er um að ræða einhverja allra vinsælustu samfélagsmiðlastjörnu landsins. Sunneva er gríðarlega vinsæl á Snapchat og hefur 24.000 fylgjendur á Instagram. Hún þykir virkilega falleg, vel til höfð og smekkleg í klæðaburði.„Þessi kona er ótrúlega heit og það gæti sennilega enginn gert svona lista hér á landi án þess að Sunneva væri á honum.“ Kristjana hefur hreinlega geislað á skjánum að undanförnu.Kristjana Arnarsdóttir – Íþróttafréttakonan á RÚV sem hefur undanfarna mánuði fært þjóðinni fréttir af íþróttafólki um heim allan. Kristjana geislar á sjónvarpskjánum og þykir standa sig vel í sínu hlutverki. Kristjana er mjög sjarmerandi og skemmtileg kona og eins og einn úr dómnefndinni sagði:„Kristjana er eitthvað svo sjarmerandi og virðist vera með svo góða nærveru. Það gerir hana algjörlega stórglæsilega.“Sunna snýr aftur í búrið í byrjun árs 2018.vísir/allan suárezSunna Rannveig Davíðsdóttir - Ein allra öflugasta bardagakona landsins og þó víðar væri leitað. Sunna er hraustasta konan á þessum lista en hún er atvinnubardagakona sem fer ekki inn í hringinn án þess að fara með sigur af hólmi. Auk þess að vera grjóthörð bardagakona er Sunna einstaklega falleg kona.„Það er eitthvað mjög einstakt við Sunnu. Það er ákveðin leyndardómur í kringum hana og maður heillast mjög auðveldlega af henni,“ sagði einn úr dómnefnd Vísis.Kolbrún Pálína er einstaklega falleg kona.vísir/antonKolbrún Pálína Helgadóttir - Kolbrún er án efa ein fallegasta kona landsins. Hún vann keppnina Ungfrú Íslands.is árið 2001 og hefur allar götur síðan verið talin ein heitasta kona landsins. Kolbrún starfar sem ritstjóri á fylgiriti Viðskiptablaðsins, Eftir vinnu. Meðlimir dómnefndar hrifust mjög af henni og höfðu þetta að segja: „Með bros sem bræðir og persónuleika sem allir heillast af.“ „Með heilsuna að vopni virðist hún eldast þannig að hún verður bara fallegri með árunum.“Áslaug Arna er glæsilegur þingmaður.visir/stefánÁslaug Arna Sigurbjörnsdóttir - Varaformaður Sjálfstæðisflokksins sem kom eins og stormsveipur inn í íslenska pólitík. Áslaug er þingmaður og fer hlutverkið henni vel. Áslaug hefur mikinn sjarma, er ákveðin og þykir einstaklega falleg. Hún væri mikill fengur fyrir hvern sem er.„Stefnumót með Áslaugu er ávísun á hina fullkomnu kvöldstund: Hvítvín, humar og Gunnar Nelson.“Sigríður varð Ungfrú Reykjavíkur árið 2011.vísir/ellýSigríður Dagbjört - er óumdeilanlega fallegasta kona höfuðborgarsvæðisins. Hún hefur verið Ungfrú Reykjavík síðan árið 2011 og því réttmætur handhafi kórónunnar undanfarin 7 ár. Það segir sína sögu.„Þegar Friðrik Dór syngur um Ungfrú Reykjavík er hann að syngja um Siggu. Þið hinar getið gleymt þessu.“Það eru þó ekki aðeins siffonkjóllinn og ótrúlega rauðu skórnir sem heilla við Siggu. Hún er líka sprengklár, starfar sem lögfræðingur og ekki skemmir fyrir að hún var að festa kaup á íbúð á dögunum. Svo á hún alltaf nóg af tómatsósu.Selma Björnsdóttir er stórglæsileg.Selma Björnsdóttir – Söngkonan sem hefur heillað íslensku þjóðina alveg frá því að hún hafnaði í öðru sæti í Eurovision árið 1999. Selma er þúsundþjalasmiður og starfar hún við söng, leikstjórn og leiklist. Hún virðist geta allt og er einhver glæsilegasta kona landsins. „Með Selmu væri maður aldrei All out of luck,“ segir einn úr dómnefndinni.Stella heillar marga.vísir/benniStella Rósenkranz – Einn færasti dansari landsins er Stella Rósenkranz, danshöfundur og deildarstjóri Dansstúdíós World Class. Hún hefur í gegnum tíðina verið mjög áberandi í dansheiminum hér á landi. Stella er gríðarlega töff týpa. Hún klæðir sig vel og heillar alla sem á vegi hennar verða.„Með skemmtilega áru yfir sér sem dregur menn að. Veraldarvön og kúltiveruð sem gaman að er að vera í návist við.“Andrea Sigurðardóttir - Fegurðardrottningin Andrea starfar sem flugfreyja og tók hún þátt í keppninni Miss Universe Iceland á dögunum. Andrea er einnig förðunarfræðingur og danskennari. Ein glæsilegasta einhleypa kona landsins án efa. „Hún er ekki aðeins falleg heldur með hjarta úr gulli og vinnur sjálfboðavinnu þegar hún er ekki í háloftunum. Mennsk fullkomnum í öllu sínu veldi, það yrði mjög auðvelt að verða ástfangin af Andreu.“ A post shared by Andrea (Andy) (@andrea1710) on Oct 24, 2017 at 10:29am PDTHér að neðan er hægt að taka þátt í könnun um heitustu einhleypu konu landsins.
Miss Universe Iceland Tengdar fréttir Heitustu piparsveinar landsins Fegurð íslenskra kvenna er heimsþekkt en glæsileiki íslenskra karlmanna hefur hins vegar ekki farið eins hátt. 4. janúar 2018 12:30 Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Fleiri fréttir Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Sjá meira
Heitustu piparsveinar landsins Fegurð íslenskra kvenna er heimsþekkt en glæsileiki íslenskra karlmanna hefur hins vegar ekki farið eins hátt. 4. janúar 2018 12:30