Fótbolti

Kolbeinn í kapphlaupi við að ná síðustu leikjum Íslands fyrir HM-valið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kolbeinn á æfingunni í dag.
Kolbeinn á æfingunni í dag. mynd/nantes fc
Kolbeinn Sigþórsson er byrjaður að æfa aftur með franska úrvalsdeildarliðinu Nantes en hann getur ekki byrjað að spila fyrr en í fyrsta lagi í lok febrúar en líklega ekki fyrr en í mars.

Frá þessu greindi Claudio Ranieri, þjálfari Nantes, á blaðamannafundi í dag en á Twitter-síðu félagsins birtist mynd af Kolbeini á hlaupum með styrktarþjálfara.

„Kolbeinn var á æfingunni en hann þarf lengri tíma,“ sagði Ranieri sem var spurður hvort svo færi að Kolbeinn myndi spila leik með Nantes á þessu tímabili.

„Það fer eftir því hvort hann komist almennilega af stað. Hann þarf enn þá einn til einn og hálfan mánuð í viðbót áður en hann spilar.“

„Ég vona að þetta gangi upp. Kolbeinn hefur lagt hart að sér til að koma sér í stand en hann á nokkuð langt í land líkamlega sem er eðlilegt,“ sagði Claudio Ranieri.

Kolbeinn hefur ekki spilað fótboltaleik síðan í lok ágúst 2016 en hann var lánaður til Galatasary í Tyrklandi undir lok félagaskiptagluggans það sama ár en hann spilaði aldrei fyrir tyrkneska félagið.

Íslenska landsliðið á tvo æfingaleik í mars þannig Kolbeinn má væntanlega ekki fara mikið seinna af stað en snemma í þeim mánuði ætli Heimir Hallgrímsson að taka hann með til Bandaríkjanna í leikina á móti Perú og Mexíkó. Það eru síðustu vináttuleikirnir áður en HM-hópurinn verður valinn í maí.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×