Lægðin brýnir kuta sína Stefán Ó. Jónsson skrifar 31. janúar 2018 07:46 Karl í krapinu. Vísir/Ernir
Við Nýfundnaland er lægð að „brýna kutana sína á leið sinni til okkar,“ eins og veðurfræðingur hjá Veðurstofunni kemst að orði. Úrkomuskil frá henni ganga yfir landið aðra nótt með hvassviðri eða storm og snjókomu í fyrstu en síðar rigningu. Þegar að lægðin kemur nær landi verður vindur vestlægari og það kólnar, él vestantil en bjartviðri eystra. Það má hins vegar gera ráð fyrir norðlægri átt í dag með éljagangi á norðanverðu landinu en bjartviðri sunnantil. Síðan mun ganga í norðvestan 18 til 23 m/s í nótt suðaustantil en yfirleitt 10 til 15 m/s á Norðaustur- og Austurlandi og enn hægari á vestanverðu landinu. Lægir og dregur úr éljum síðdegis á morgun, „og þar með kveður norðanáttin okkur í bili,“ segir veðurfræðingurinn. Frostið verður á bilinu 2 til 10 stig, kaldast inn til landsins. Á sunnudag er svo útlit fyrir næstu djúpu lægð með hvössum vindi og rigningu, áður en það kólnar aftur á mándag með éljum vestantil. Svo eru líkur á að þriðja lægðin kemur upp að landinu á miðvikudag. „Það eru því umhleypingarsamir tímar framundan, en bjartviðri og úrkomulítið í dag um landið suðvestanvert. Um að gera að njóta þess á meðan það varir.“Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ fimmtudag:Norðlæg átt 8-15 m/s norðaustanlands og dálítil él, en annars hægari, bjartviðri og talsvert frost. Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp síðdegis, fyrst suðvestantil. Hvassviðri eða stormur með snjókomu og síðar rigningu um kvöldið og hlýnar í veðri.Á föstudag:Sunnan 15-20 m/s, víða rigning og hiti 0 til 5 stig. Heldur hægari suðvestanátt þegar líður á daginn með éljum og kólnandi veðri en birtir til norðaustanlands.Á laugardag:Suðvestan 8-15 m/s og él sunnan- og vestantil, en bjartviðri austanlands. Hiti nálægt frostmarki.Á sunnudag:Gengur í sunnan hvassviðri eða storm með rigningu sunnan- og vestanlands en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 2 til 7 stig, en fer kólnandi um kvöldið.Á mánudag og þriðjudag:Útlit fyrir suðvestan stormi með talsverðum éljagangi, en úrkomulítið og bjart með köflum austanlands. Frost um land allt.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira