Prinsessan í tímaþröng og frestar brúðkaupinu um tvö ár Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. febrúar 2018 19:16 Mako prinsessa og Kei Komuro kynntust þegar þau voru bæði í námi, Vísir/afp
Japanska prinessan Mako hefur tilkynnt um að hún hyggist fresta brúðkaupi sínu, sem halda átti á þessu ári, fram til ársins 2020. Í tilkynningu frá prinsessunni segir að hún og unnustinn hafi ekki fengið nægan tíma til undirbúnings. BBC greinir frá. Mako trúlofast kærasta sínum Kei Komuro, sem er af almúgaættum, í fyrra. Verður það óhjákvæmilega til þess, eins og Vísir greindi frá í vor, að hún verður svipt öllum konunglegum titlum í fyllingu tímans. Í tilkynningu frá parinu vegna málsins sagði að ekki hefði nægur tími fengist til fullnægjandi undirbúnings. Mikið verði um að vera hjá keisarafjölskyldunni á árinu og því næsta, þar á meðal fyrirhuguð afsögn keisarans Akihito. „Mér þykir mjög leitt að hafa valdið þeim sem hafa hjálpað til við brúðkaupið vandræðum og verið þeim byrði,“ hafði AFP-fréttaveitan eftir Mako prinsessu í dag. Mako og Komuro, sem kynntust þegar þau voru bæði í námi, hafa þó fullvissað fjölskyldu sína og fjölmiðla ytra að þau stefni ótrauð að því að gifta sig þrátt fyrir að hafa frestað brúpkaupinu. Mako er elsta barnabarn Akihito keisara og dóttir prinsins Fumihito sem er annar í röðinni að japanska keisaratitlinum. Bróðir hennar, sem fæddur er árið 2001, er sá þriðji.
Tengdar fréttir Ástin dýrmætari en keisaratitlarnir Prinsessan Mako greindi í gær frá trúlofun sinni og almúgamannsins Kei Komuro. Hún mun þurfa að afsala sér öllum titlum innan keisaraættarinnar. 4. september 2017 05:54 Japönsk prinsessa afsalar sér titlum fyrir ástina Prinsessan Mako hyggst giftast manni sem er af almúgaættum. 18. maí 2017 08:10 Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Fleiri fréttir Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Sjá meira
Ástin dýrmætari en keisaratitlarnir Prinsessan Mako greindi í gær frá trúlofun sinni og almúgamannsins Kei Komuro. Hún mun þurfa að afsala sér öllum titlum innan keisaraættarinnar. 4. september 2017 05:54
Japönsk prinsessa afsalar sér titlum fyrir ástina Prinsessan Mako hyggst giftast manni sem er af almúgaættum. 18. maí 2017 08:10