Valur tók á móti Selfossi í Olís-deild kvenna að Hlíðarenda í dag og er skemmst frá því að segja að leikurinn varð aldrei spennandi vegna yfirburða heimaliðsins.
Átta mörkum munaði á liðunum í leikhléi þar sem staðan var 16-8 fyrir Val. Fór að lokum svo að Valur vann fimmtán marka sigur, 28-13.
Vigdís Birna Þorsteinsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir fóru mikinn í sóknarleik Vals, skoruðu sjö mörk hver.
Á sama tíma vann Stjarnan stórsigur á Gróttu, 36-22 á Seltjarnarnesi. Staðan í leikhléi 18-11. Sólveig Lára Kjærnested var atkvæðamest með 12 mörk.
