Barcelona heldur áfram taplausu hrinu sinni í spænsku úrvalsdeildinni, en í dag vann liðið sinn nítjánda sigur á tímabilinu þegar liðið vann 2-0 útisigur á Eibar.
Luis Suarez kom Barcelona yfir á sextándu mínútu eftir undirbúning frá argentíska snillingnum, Lionel Messi og þannig var staðan í hálfleik.
Fabian Orellana var svo visa í sturtu á 66. mínútu og undir lok leiksins tvöfaldaði Jordi Alba forystu Barcelona áður en yfir lauk. Lokatölur 2-0.
Barcelona er með tíu stiga forskot á Atletico Madrid, en Börsungar hafa unnið nítján leiki og gert fimm jafntefli. Eibar er í sjöunda sætinu.
Í hinum leik dagsins sem lokið er vann Sevilla 2-1 sigur á Las Palmas, en Sevilla er í fimmta sætinu - þremur stigum frá Real Madrid sem á þó leik til góða.
