Fríkirkjuprestur um umskurðarfrumvarpið: „Verulega vanhugsað og skaðlegt“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. febrúar 2018 11:15 Hjörtur Magni Jóhannsson, fríkirkjuprestur, er ekki hrifinn af frumvarpi Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framóknarflokksins, sem leggur til bann við umskurði drengja. vísir
Hjörtur Magni Jóhannsson, fríkirkjuprestur, er ekki hrifinn af frumvarpi Silju Daggar Gunnarsdóttur og átta annarra þingmanna sem leggur bann við umskurði drengja. Hjörtur ritar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann segir meðal annars að frumvarpið sé „verulega vanhugsað og skaðlegt“ og segir eðlismun á umskurði drengja og því að umskera kynfæri kvenna sem hefur verið bannað hér á landi síðan 2005. „Það að líkja þessu tvennu saman lýsir annaðhvort verulegri vanþekkingu eða annarlegum ásetningi. Umskurður sveinbarna er einn útbreiddasti menningar/trúarsiður sem fyrirfinnst í mannlegum samfélögum. Almennt er talið að rúmur þriðjungur karla í heiminum sé umskorinn. Ástæður eru gjarnan sambland af menningar/trúararfi, hreinlætisástæðum, samkennd, jákvæðri sjálfsmynd og heiðri. Umskurður drengja er algengastur í Mið-Austurlöndum en stór hluti t.d. Bandaríkjamanna er einnig umskorinn. Umskurður drengja er hvergi bannaður í heiminum frekar en ungbarnaskírn okkar kristinna, né stangast framkvæmdin á við nokkur mannréttindi,“ segir fríkirkjuprestur og heldur áfram:Segir umskurði drengja ekki ætlað að meiða „Í lagafrumvarpinu er þetta tvennt lagt að jöfnu. Þar er dregin upp hryllingsmynd, talað um limlestingu og líkamsárás. Það sem tugir milljóna upplýstra Vesturlandabúa telja mikla blessun og sæmd fyrir sig og syni sína er gert að grimmdarglæp sem ber að refsa fyrir. Þar er vitnað í einhliða læknisfræðilegar upplýsingar og reynt að láta líta svo út að siðurinn stangist á við samþykktir Sameinuðu Þjóðanna sem hann gerir þó ekki. Í greinargerð virðist gengið út frá því að alltaf þegar umskurður drengja er framkvæmdur þá sé það við lífshættuleg skilyrði, við þvingun og mikla kvöl. Það er alrangt. Umskurði drengja er ekki ætlað að meiða, niðurlægja eða skerða lífsgæði með nokkrum hætti, heldur hið gagnstæða. Í jafn karlmiðlægum feðraveldis menningarsamfélögum sem múslima og gyðinglegra samfélaga, þá er í raun fáránlegt að halda því fram að tilgangur umskurðar sveinbarna sé til niðurlægingar eða til takmörkunar drengja til að njóta kynlífs síðar. Þetta varðar sjálfsmynd, menningu/trú, ævaforna siði, heiður og hreinlæti.“Samtök gyðinga á Norðurlöndum sent yfirlýsingu til allra þingmanna Með grein sinni bætist Hjörtur Magni í hóp ýmissa annarra sem hafa gagnrýnt frumvarp Silju Daggar harðlega. Þannig eru trúarleiðtogar gyðinga í Evrópu ósáttir við frumvarpið og var í byrjun mánaðarins greint frá því að trúarleiðtogar gyðinga í Evrópu, bræðurnir Yair og Yoav Melchior, hafi verið í forsvari þeirra sem gagnrýna frumvarpið en hliðstætt frumvarp er til skoðunar í Danmörku. Að þeir mati mun Ísland setja „hættulegt fordæmi“ ef frumvarpið verði samþykkt þar sem ekkert land bannar umskurð drengja. Íslensku lögin gætu þannig haft áhrif á löggjöf annarra landa. Þá var greint frá því í síðustu viku að kardínálinn Richard Marx í Munchen í Þýskalandi, sem jafnframt er formaður Evrópusambandssnefndar kaþólska biskuparáðsins í Evrópu og náinn ráðgjafi Frans páfa, fordæmdi frumvarpið. Þá sendu samtök gyðinga á Norðurlöndum yfirlýsingu til allra þingmanna í vikunni, að því er greint var frá í fréttum RÚV, en í yfirlýsingunni sagði að með frumvarpinu væri ráðist gegn gyðingdómi þannig að það snerti gyðinga um allan heim.Annar prestur einnig tjáð sig um málið Bjarni Karlsson, prestur, gerði málið einnig að umtalsefni í bakþönkum sínum í Fréttablaðinu í liðinni viku og sagði þá meðal annars: „Væri ekki ráð, í stað þess að glæpavæða hérna heilu menningarheimana, að við efndum til samtals þar sem við fengjum að heyra ólíkar raddir og reynslu karlmanna í tengslum við umskurn? Fengjum að fræðast af gyðingum, múslimum, Bandaríkjamönnum o.fl. menningarheildum og reyndum að skilja hvað um er að ræða þegar umskurn er annars vegar. Hættan er nefnilega sú að þetta málefni verði bara farvegur fyrir meðvitaða og ómeðvitaða þörf okkar fyrir það að vera hreinni, upplýstari og betri en annað fólk.“ Vísir hefur óskað eftir viðbrögðum frá Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup Íslands, vegna málsins en ekki hafa fengist svör.Grein Hjartar Magna fríkirkjuprests má lesa í heild sinni hér.
Alþingi Heilbrigðismál Trúmál Umskurðsfrumvarp Tengdar fréttir Frumvarp um bann við umskurði drengja vekur athygli: „Þetta er ónauðsynleg aðgerð og inngrip, sem veldur sársauka og er gerð án þeirra samþykkis“ Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins var gestur Heimis Más Péturssonar í Víglínunni í dag. Hún ræddi þar frumvarp sem hún og átta aðrir þingmenn lögðu fram sem mælir fyrir um bann við umskurði drengja. 3. febrúar 2018 15:15 Fordæmir umskurðarfrumvarp Silju Daggar og segir það árás á trúfrelsið Kardínálinn Richard Marx í Munchen í Þýskalandi fordæmir frumvarp Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, og átta annarra þingmanna sem leggur bann við umskurði drengja. 7. febrúar 2018 10:25 Fyrsti íslenski rabbíninn mun beita sér gegn umskurðarbanninu Hjónin Avi og Musky Feldman, ásamt dætrum þeirra Chana og Batsheva, munu síðar á þessu ári setjast að í Reykjavík með það fyrir augum að setja á laggirnar fyrstu íslensku sýnagóguna. 12. febrúar 2018 07:48 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Frumvarp um bann við umskurði drengja vekur athygli: „Þetta er ónauðsynleg aðgerð og inngrip, sem veldur sársauka og er gerð án þeirra samþykkis“ Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins var gestur Heimis Más Péturssonar í Víglínunni í dag. Hún ræddi þar frumvarp sem hún og átta aðrir þingmenn lögðu fram sem mælir fyrir um bann við umskurði drengja. 3. febrúar 2018 15:15
Fordæmir umskurðarfrumvarp Silju Daggar og segir það árás á trúfrelsið Kardínálinn Richard Marx í Munchen í Þýskalandi fordæmir frumvarp Silju Daggar Gunnarsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, og átta annarra þingmanna sem leggur bann við umskurði drengja. 7. febrúar 2018 10:25
Fyrsti íslenski rabbíninn mun beita sér gegn umskurðarbanninu Hjónin Avi og Musky Feldman, ásamt dætrum þeirra Chana og Batsheva, munu síðar á þessu ári setjast að í Reykjavík með það fyrir augum að setja á laggirnar fyrstu íslensku sýnagóguna. 12. febrúar 2018 07:48