City Taxi gjaldþrota Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. febrúar 2018 09:42 Sigtryggur Arnar Magnússon var framkvæmdastjóri City Taxi. Vísir
Leigubílaþjónustan City Taxi var úrskurðuð gjaldþrota með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þann 26. janúar síðastliðinn. Var búið tekið til gjaldþrotaskipta. Var Anton Björn Markússon lögmaður skipaður skiptastjóri í búinu. City Taxi var stofnað árið 2007 og hefur sinnt leigubílaþjónustu, meðal annars boðið upp á ferðir til og frá Keflavíkurflugvelli. Ekki náðist í Sigtrygg Arnar Magnússon við vinnslu fréttarinnar. Skráðum farsíma hans á Já.is virðist hafa verið lokað og enginn svarar í símanúmer City Taxi. Þá virðist engin virkni hafa verið á Facebook-síðu City Taxi síðan sumarið 2016.Rógburður reyndist menntaskólahrekkurFyrirtækið komst í fréttirnar í desember 2013 þegar framkvæmdastjórinn Sigtryggur Arnar Magnússon sakaði samkeppnisaðila um að hafa skrifað færslu á Facebook þar sem starfsfólk væri sakað um að stela símum af viðskiptavinum sem greiddu ekki. Málið var hið undarlegasta en reyndist á endanum vera hrekkur menntaskólastráks. Færsla birtist á Facebook-síðu menntaskólanemans Brynjólfs Hauks Ingólfssonar. Þar var fullyrt að hann hefði hlaupið út úr leigubíl án þess að borga fyrir farið. Hann hefði aftur á móti verið svo óheppinn að gleyma símanum sínum í bílnum. Færslan var svo hljóðandi: „Í gær var ég mjög dónalegur við leigubílstjóra og neitaði að borga fyrir farið og eftir að hafa rifist við hann hótaði hann að fara með mig á lögreglustöðina og ég varð hræddur og ákvað að reyna hlaupa í burtu án þess að borga fyrir farið. Þegar ég hljóp í burtu gleymdi ég símanum mínum í leigubílnum. Nú er þessi leigubílstjóri að kenna mér lexíu með því að skrifa þessa uppfærslu. Þótt ég hafi verið mjög dónalegur og hagað mér eins og fífl er leigubílstjórinn það góður að leyfa mér að fá símann til baka með þeim skilyrðum að ég borgi einungis farið og að ég biðjast afsökunar á Facebook síðu minni. Vinsamlegast hafðu samband City Taxi leigubílastöð í síma 422 2222 þegar þú hefur uppfyllt þessi skilyrði vinur. Vonandi verður þessi uppfærsla til þess að þú hugsir þig tvisvar ef ekki tvisvar um áður en þú ert með dólg og neitar að borga fyrir far án skýringa. Kær kveðja Hallur leigubílstjóri.“Skildi Facebook eftir opið Færslan fór sem eldur í sinu um netheima. Sigtryggur, framkvæmdastjóri City Taxi, sagðist í samtali við Vísi telja starfsmenn á Borgarbílastöðinni standa á bak við færsluna. Grunsemdir sínar byggði hann á því að stöðin væri með lénið airport-citytaxi.is sem væri svo líkt léni City Taxi, citytaxi.is. Á þeim tíma var Sigtryggur að skoða rétt sinn ásamt lögmanni sínum, Sveini Andra Sveinssyni. „Ég er á leiðinni til Sveins Andra en hann er Facebook snillingur og getur eflaust fundið út hvaðan þessi færsla um leigubílstjórann Hall er komin,“ sagði Sigtryggur. Í ljós kom að vinur Brynjólfs, Daníel Aron Lárusson, hafði skrifað færsluna til að hrekkja vin sinn. „Þetta var allt bara eitthvað grín. Ég skildi Facebook-síðuna mína eftir opna og vinur minn sem leggur mikið upp úr gríni setti þessa færslu inn,“ sagði Brynjólfur Haukur. Áttaði sig ekki á hrekknum fyrr en eftir próf „Við vorum að læra fram eftir og svo fór ég í próf í morgun og sá þetta ekki fyrr en eftir það,“ segir Brynjólfur. Þá var færslan komin með hátt í 300 „like“ sem þótti mikið á því herrans ári 2013. „Aldrei hefði mér dottið í hug að þetta myndi vekja svona mikla athygli, segir hann. „Þetta er alveg ruglað.“ „Ég vil ekki lenda í neinu veseni útaf þessu og ég er mjög hissa á því hvernig þetta hefur þróast,“ segir Brynjólfur sem tekur þó fram að honum finnst þetta þrátt fyrir allt vera mjög fyndið.
Gjaldþrot Tengdar fréttir Rógburðurinn reyndist vera menntaskólahrekkur Grín tveggja menntaskólanema fór úr böndunum. Varð valdur að ásökunum milli leigubílastöðvarinnar City Taxi og samkeppnisaðila. 13. desember 2013 15:09 Grunar keppinaut um rógburð á Facebook "Ég er á leiðinni til Sveins Andra en hann er Facebook snillingur og getur eflaust fundið út hvaðan þessi færsla um leigubílstjórann Hall er komin,“ segir Sigtryggur Arnar Manússon, framkvæmdastjóri City taxi. 13. desember 2013 13:00 Mest lesið Play er gjaldþrota Viðskipti innlent Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Neytendur Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Viðskipti innlent Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Viðskipti innlent Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Viðskipti innlent Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Viðskipti innlent Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Viðskipti innlent „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ Viðskipti innlent Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Viðskipti innlent „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Play er gjaldþrota Bein útsending: Staða aðfluttra á húsnæðismarkaði Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Sjá meira
Rógburðurinn reyndist vera menntaskólahrekkur Grín tveggja menntaskólanema fór úr böndunum. Varð valdur að ásökunum milli leigubílastöðvarinnar City Taxi og samkeppnisaðila. 13. desember 2013 15:09
Grunar keppinaut um rógburð á Facebook "Ég er á leiðinni til Sveins Andra en hann er Facebook snillingur og getur eflaust fundið út hvaðan þessi færsla um leigubílstjórann Hall er komin,“ segir Sigtryggur Arnar Manússon, framkvæmdastjóri City taxi. 13. desember 2013 13:00