Sport

Fyrstu átökin hjá Rondu í WWE | Myndbönd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
McMahon, sem er dóttir eiganda WWE, er hér að láta Rondu heyra það.
McMahon, sem er dóttir eiganda WWE, er hér að láta Rondu heyra það.
Ronda Rousey mætti á sína aðra uppákoma hjá WWE í nótt. Þar skellti hún framkvæmdastjóra WWE í gegnum borð og fékk kinnhest frá dóttur eiganda WWE, Vince McMahon.

Það var auglýst að Ronda væri mætt til þess að skrifa undir samning við WWE en auðvitað var hlaðið í smá sýningu. Ronda skellti framkvæmdastjóranum, Triple H, í gegnum borð í hringnum.





Þá mætti annar framkvæmdastjóri, Stephanie McMahon, og rak Rondu heljarinnar kinnhest. Hún lét sig svo fljótt hverfa áður en Ronda tæki á henni.

Ronda skrifaði í kjölfarið undir samninginn og henti honum svo í Triple H. Skemmtilegt leikrit sem ævintýralegur fjöldi hefur gaman af. WWE er mjog vinsælt í Bandaríkjunum en því er spáð að Ronda muni lyfta vinsældum þess í hæstu hæðir.





 



MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×