Real Madrid kláraði Leganes í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld eftir að hafa lent undir, en lokatölur urðu 3-1 sigur spænsku meistarana.
Unai Bustinza kom heimamönnum í Leganes yfir strax á sjöttu mínútu leiksins, en Lucas Vasquez jafnaði metin á elleftu mínútu. Casemiro kom svo Real í 2-1 fyrir hlé.
Staðan hélst 2-1 allt þangað til í uppbótartíma þegar Sergio Rames skoraði úr vítaspyrnu sem Real fékk eftir laglegt samspil. Lokatölur 3-1.
Real er í þriðja sætinu, fjórtán stigum á eftir Barcelona og sjö stigum á eftir Atletico Madrid.
Real kláraði Leganes
