Birkir Már vinnur ekki bara landsleiki heldur líka ferðavinninga Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. mars 2018 16:00 Birkir Már vinnur og vinnur. mynd/Notaðir bílar - Brimborg
Bikir Már Sævarsson, landsliðsbakvörður í fótbolta, getur ekki hætt að vinna. Lífið leikur við Valsmanninn sem er á leiðinni á HM í sumar með strákunum okkar. Eftir HM og tímabilið í Pepsi-deildinni er hann nefnilega á leiðinni í gott frí í boði Brimborgar því Birkir vinnur ekki bara landsleiki heldur líka ferðavinninga. Bakvörðurinn eldfljóti keypti sér Ford Explorer á dögunum og vann eftir það Ferðafjörsleik Brimborgar í febrúar. Í sigurlaun fékk hann aðalferðavinninginn sem nemur 400.000 krónum. Birkir Már tók við vinningnum úr höndum Ingigerðar Einarsdóttur, markaðsstjóra Ford, í höfuðstöðvum Brimborg sem er, eins og allir vita, öruggur staður til að vera á. Birkir Már sneri heim úr atvinnumennsku í vetur og samdi við uppeldisfélag sitt Val. Hann er að reyna að komast í stutt lán til Norðurlanda til að vera betur undirbúinn fyrir HM en allt stefnir í að hann verði bara hér heima fram að Íslandsmótinu. Valsmenn eru líklegir til að verja Íslandsmeistaratitil sinn í sumar þannig hver veit nema Birkir taki aðra gullmedíalíu sína frá Íslandsmótinu þegar hann fær loks sumarfrí í október næsta haust.
Íslenski boltinn Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Sjá meira