Eldgosið í Eldgjá ýtti undir kristnitökuna Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. mars 2018 08:07 Áhrifa eldgossins í Eldgjá árið 940 gætti um víða veröld. Vísir/Auðunn
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að eldgosið í Eldgjá á tíundu öld hafi ýtt undir það að Íslendingar tóku upp kristni á Þingvöllum. Hópur eldfjallasérfræðinga og miðaldarsagnfræðinga, undir styrkri stjórn vísindamanna úr Cambridge, reiddu sig á gögn úr ískjörnum og trjáhringjum til að tímasetja nákvæmlega eldgosið í Eldgjá. Gögn þeirra benda til þess að gosið hafi hafist vorið 939 og hafi staðið fram til haustsins 940, um sex áratugum eftir hið formlega upphaf landnáms Íslands. Fram til þessa hafa flestir talið að gosið hafi byrjað árið 934. Vísindamennirnir telja að hin nýja tímasetning bendi til þess að gosið hafi auðveldað innreið kristinsdómsins á Íslandi og að sönnunina megi ekki síst finna í Völuspá. Niðurstöðurnar birtust fyrst í grein í vísindaritinu Climatic Change og má nálgast með því að smella hér.Eldgosið í Eldgjá er talið hafa verið ógnarstórt en ætlað er að rúmlega 20 rúmkílómetrar af hrauni hafi runnið úr gjánni á því rúma ári sem gosið stóð yfir. Til samanburðar má benda á að hraunmagnið myndi ná að þekja allt England „upp að ökklum,“ eins og það er orðað. Fram til þessa hefur verið erfitt að áætla nákvæmlega hvenær gosið átti sér stað og hefur það gert vísindamönnum erfitt fyrir að meta raunveruleg áhrif þess. Hin nýja rannsókn bendir þó til þess að það hafi átt sér stað í kringum árið 940 og segir Dr. Clive Oppenheimer, eldfjallasérfræðingurinn sem fór fyrir rannsókninni, að það haldist í hendur við upplifun fyrstu landsnámsmannanna. Margir þeirra hafi jafnvel sjálfir upplifað gosið.Ríkulegar og lifandi samtímaheimildir úr Evrópu Þegar vísindamönnunum hafði tekist að tímasetja gosið hófust þeir handa við að rannsaka áhrif þess. Frásagnir frá meginlandi Evrópu benda til þess að gosmökkurinn hafi orðið til þess að sólin hafi virst blóðrauð um alla álfuna. Annálar frá Írlandi, Þýskalandi og Ítalíu renni stoðum undir þá fullyrðingu. Reykjarmökkurinn hafi að sama skapi orðið til þess að lækka hitastigið í Evrópu enda sólarljós átt erfiðara með að baða álfuna. Vísbendingar úr trjáhringjum bendi þannig til þess að eldgosið hafi framkallað eitt kaldasta sumar síðastliðinna 1500 ára. Sumarhitinn hafi verið um tveimur gráðum lægri en í meðalári. Því næst hafi rannsakendahópurinn litið á skriflegar miðaldaheimildir til að öðlast innsýn í upplifun samtímamanna af áhrifum gossins. „Þetta var vissulega stórt gos en það kom okkur samt á óvart hvað sögulegar heimildir um áhrif gossins eru ríkulegar,“ er haft eftir Dr. Tim Newfield, einum vísindamannanna. Einstaklingar um víða veröld hafi þurft að þola langan, kaldan vetur og mikla þurrka vegna gossins sem meðal annars hafi leitt til uppskerubrests í Þýskalandi, Írak og Kína.Hér sést vísindamaður benda á vísbendingarnar í Völuspá.Vísbendingar í Völuspá Þrátt fyrir það virðast engar skriflegar heimildir frá Íslandi um gosið hafa varðveist. Hins vegar telja vísindamennirnir að í Völuspá, líklega frægasta miðaldarkvæði Íslendinga, megi finna bitastæða lýsingu á gosinu og áhrifum þess. Í tveimur erindum Völuspár segir:Fylliz fjǫrvifeigra manna,rýðr ragna sjǫtrauðum dreyra;svǫrt verða sólskinof sumur eftir,veðr ǫll válynd.Vituð ér enn—eða hvat? --------------------------Sól tér sortna,sígr fold í mar,hverfa af himniheiðar stjǫrnur.Geisar eimiok aldrnara,leikr hár hitivið himin sjálfan. Þegar þessi tvö erindi, það 41 og 57, eru lesin saman segja vísindamennirnir að augljóst sé að höfundurinn sé að lýsa eldgosi, ekki ósvipuðu því sem varð í Eldgjá. Eldtungur sem ná til himins, blauðrauður himinn og svört sól - allt haldist þetta í hendur við lýsingar samtímamanna á áhrifum gossins í Evrópu. Völuspá lýsir því hvernig heimur heiðnu guðanna líður undir lok. Vísindamennirnir telja að myndin sem dregin er upp í ljóðinu hafi verið notuð til þess að minna fólk á hamfarir eldgossins í Eldgjá og þannig ýta undir að Íslendingar myndu taka upp nýja siði. „Nú þegar við erum loksins komin með nákvæma tímasetningu fyrir gosið þá virðast margar miðaldaheimildir varpa ljósi á afleiðingar þess. Frásagnir í Evrópu af ótrúlegri móðu, hörðum vetri, köldu sumri, lélegri uppskeru og matarskorti,“ segir Oppenheimer. „En ótrúlegast er hvernig gosinu er lýst eins og af vitni í Völuspá. Túlkunin á ljóðinu sem endalok heiðnu guðanna og hvernig þeim var skipt út fyrir einn, einstæðan guð, bendir til þess að minningar um gosið hafi verið sérstaklega notaðar til að ýta undir kristnitöku á Íslandi,“ bætir Oppenheimer við. Eða eins og Snorri Þorgrímsson á Helgafelli á að hafa mælt á Þingvöllum: „Um hvað reiddust goðin, þá er hér brann hraunið, er nú stöndum vér á?“Rannsóknina má nálgast hér.
Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira