Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Samúel Karl Ólason skrifar 2. nóvember 2026 18:23 Bergþóra Pálsdóttir segir að verið sé að bola þeim tólf sem eru í hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða á brott. Fólkið hafi samt enga aðra staði til að fara á. Vísir/Vilhelm „Þeir komu í morgun. Tóku rafmagnið, vatnið og allt saman,“ segir Bergþóra Pálsdóttir, talskona Samtaka hjólabúa. Hún segir að starfsmenn Reykjavíkurborgar hafi tekið rafmagnið af svæðinu þar sem fólk hefur haldið til í hjólhýsabyggð á Sævarhöfða. Bergþóra segir að umrætt fólk sé búið að borga reikninga fyrir bæði rafmagn og vatn fyrir nóvember og einhverjir hafi þegar greitt fyrir desember. „
Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól. Það er ekki hægt að koma svona fram við fólk. Við borgum skatta og skyldur okkar í Reykjavík.“ Byggð þessi fluttist á Sævarhöfða sumarið 2023, þegar íbúum var gert að yfirgefa tjaldsvæðið í Laugardal. Til stóð að færa hana á Gufunes en borgarráð sagði í sumar upp samningi um þá flutninga, um tveimur mánuðum eftir að hann var undirritaður. Sjá einnig: Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Bergþóra segir um tólf manns enn búa í hjólhýsabyggðinni og þar af þrír krabbameinssjúklingar. Einn þeirra fór í morgun og fékk lánaða rafstöð. Hún segir markmiðið klárlega að koma fólki á brott en ekkert annað sé í boði fyrir fólkið. „Hvert á fólkið að fara? Sumir eru í vinnu hérna í Reykjavík.“ Sjá einnig: Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Bergþóra segir ekkert hafa verið talað við fólkið í aðdraganda þess að rafmagnið og vatnið hafi verið tekið af. „Þetta er hann Einar [Þorsteinsson]. Hann vill ekki sjá þetta,“ segir Bergþóra í samtali við Vísi. Hún segir einnig að Einar hafi gefið til kynna að búið væri að bjóða íbúum hjólhýsabyggðarinnar félagslega aðstoð. Íbúar kannist ekki við slíkt. „Aulahátturinn að geta ekki komið og rætt við okkur. Ég veit ekki við hvað hann er hræddur.“ Hefur aldrei liðið betur Bergþóra er sjálf komin með íbúð, eftir að hafa búið í hjólhýsi í þrettán ár. Hún segist sakna byggðarinnar að mörgu leyti og henni hafi aldrei liðið betur en á þessum árum í hjólhýsinu. Hópurinn sótti um að fá að vera á gamla Sorpu-svæðinu á Sævarhöfða. Bergþóra segir að það hefði hentað fínt og að aðstæður væru fínar. Þeirri beiðni var hafnað af borginni. „Það er ótrúlegt hvernig er hægt að haga sér. Ég er eiginlega alveg orðlaus yfir þessu. Það eru svona svæði alls staðar í heiminum. Þau eru flott og hugsað vel um þau. Hérna má ekki gera neitt.“ Í síðasta mánuði kom fram í svari skrifstofu borgarstjóra og borgarritara við fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands að Reykjavíkurborg hefði greitt um 19,8 milljónir króna fyrir rafmagn í hjólhýsabyggðinni. Bergþóra segir að fyrir hvert hjólhýsi hafi verið borgaðar 30 þúsund krónur á mánuði í rafmagn. Það sé meira en þau noti. „Við settum mæli á eitt hjólhýsi í vetur. Það voru á milli tólf og fimmtán þúsund krónur sem fóru í rafmagn þá.“
Hjólhýsabyggð í Reykjavík Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Fleiri fréttir Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Sjá meira