Innlent

Fagna því að fram­kvæmda­leyfi fyrir Lykla­fells­línu 1 var fellt úr gildi

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Lyklafellslína átti að fara yfir ósnortið hraun austan við Helgafell sem er vel sóttur útivistarstaður af íbúum höfuðborgarsvæðisins.
Lyklafellslína átti að fara yfir ósnortið hraun austan við Helgafell sem er vel sóttur útivistarstaður af íbúum höfuðborgarsvæðisins. Vísir/Ernir
Hraunavinir og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands fagna úrskurði Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um að fella úr gildi framkvæmdaleyfi Hafnarfjarðarbæjar vegna Lyklafellslínu. Stjórnarmaður í Náttúruverndarsamtökunum segir að nú sé lag að skoða aðra og áhættuminni möguleika við flutning raflína fjær byggð í Hafnarfirði.

Náttúruverndarfélögin hafa um hríð barist gegn byggingu háspennulína yfir grannsvæði vatnsverndar höfuðborgarsvæðisins en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðrar lagningar Lyklafellslínu úr gildi fyrr í vikunni. Eydís Franzdóttir, stjórnarmaður í Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands, segir úrskurðinn ekki koma á óvart.

„Við fögnum því að þessi úrskurður fór svona og það gefst núna svigrúm til þess að skoða aðra möguleika á því að færa til eða rífa niður Hamrafellslínur eða leggja þær í jörð, alla vega á þeim hluta þar sem þær hamla byggð, þá sérstaklega í Hafnarfirði. Við höfum haft áhyggjur af þessari framkvæmd, Lyklafellslínu þar sem að hún er áætluð yfir grannsvæði vatnsverndar alls höfuðborgarsvæðisins,” segir Eydís.

Tillögur NSVE og Hraunavinaumtilfærslur Hamraneslína: 1. Lagning í jörð með línuvegi, 2. lagning íjörð með vegaslóðum ofan byggðar, 3. flutningur háspennulínu. Allt eru þetta lausnir utan vatnsverndarsvæði.Aðsent

Hefði verið skrítið að fá aðra niðurstöðu

Hún segir samtökin ekki leggjast gegn skipulagi á íbúðasvæðum á Völlum og Skarðshlíð í Hafnarfirði eins og ýjað hafi verið að. Þar þurfi bæjar- og skipulagsyfirvöld í Hafnarfirði þó að líta í eigin barm en þau hafi skipulagt hverfin á sínum tíma með fullri vitneskju um stöðuna, að því er segir í tilkynningu frá Hraunavinum og Náttúruverndarsamtökum Suðvesturlands.

„Það er fyrirliggjandi Hæstaréttardómur um það að umhverfismatið sé ófullnægjandi og álit skipulagsstofnunar um umhverfismatið þannig að ég verð að segja það að það hefði verið mjög skrítið ef þessi úrskurður hefði verið á annan veg,” segir Eydís.

Grunnvatnsstraumar skv. líkani Verkfræðistofunnar Vatnaskila. Örfarnar sýna rennsli grunnvatns, rauðupunktarnir brunnholur, svarta brotalínan sýnir legu Lyklafellslínu 1 og rauðalínan legu Hamraneslína að mestu norðan grunnvatnsstraumanna.Aðsent
Náttúruverndarfélögin tvö segja ekki ásættanlegt að kjörnir fulltrúar íbúa höfuðborgarsvæðisins taki þá áhættu að leyfa framkvæmdina sem gæti spillt gæðum neysluvatns.

„Við gerum okkur grein fyrir að við erum ekki endilega búin að afstýra þessu. En það er lag núna að skoða aðra möguleika sem að eru miklu áhættuminni.”


Tengdar fréttir

Óttast spjöll og kærðu leyfi fyrir línulögn

Hraunavinir, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og eigendur Selskarðs hafa kært framkvæmdaleyfi vegna lagningar Lyklafellslínu. Fjögur sveitarfélög gefið Landsneti grænt ljós og stefnt að útboði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×