Stjörnuspá Siggu Kling – Bogmaðurinn: Hefur allt of miklar áhyggjur 6. apríl 2018 09:00
Elsku káti skemmtilegi Bogmaðurinn minn, það er annað hvort allt eða ekkert sem nærir þig, svo treystu innsæi þínu frekar en orðum annarra, það eru miklir töfrar í loftinu og allskonar tilboð ef þú skoðar betur. Í lífinu þínu skiptir svo miklu máli að vera í góðu sambandi og leyfa ástinni flæða, það er lykillinn að þínum frama, hvernig svo sem þú túlkar það orð það því það er svo misjafnt hvaða túlkun við setjum í þetta orð. Frammi fyrir mér er einfaldlega að ná árangri í því sem ég er að gera núna, til dæmis ef þú vinnur á hamborgarastað reyndu þá að ná árangri í því og gerðu það vel. Snillingurinn hann Björgvin Páll markmaður Íslands, sagði þessa setningu í sjónvarpinu: „Það hafa allir eitthvað geggjað“ svo finndu það sem er geggjað í þér, hleyptu því út og hjálpaðu öðrum að gera slíkt hið sama, það er þinn lykill að karma lögmálinu. Þitt stóra hjarta hefur allt of miklar áhyggjur af því sem er að gerast allt í kring, en þú getur ekki breytt heiminum þó þú viljir það, breyttu frekar sjálfum þér og þegar þú getur sagt: Ég er mín fyrirmynd og þá er hamingjunni náð. Þú ert svo laus við allt fals og getur þar af leiðandi átt það til að segja meira en þú ættir, notaðu meira falleg orð því þá nærðu miklu betri stjórn á þeim sem þú vilt hrista til. Þetta mun frekar heilla alla í kringum þig, því það er svo sterkt merki um að mann skorti sjálftraust ef maður hækkar róminn og rífst við fólk í kringum sig. Þú ert svo rausnarlegur í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur og gjafmildur einstaklingur, en aldrei búast við neinu í staðinn því þá kemur pirringurinn í allt æðakerfið þitt. Þú ert að fara inn í tímabil þar sem þú átt eftir að hugsa mjög vel um þig, færð kraft til að byggja þig upp og þú munt líta svo vel út að fólk hefur orð á því. Skilaboðin þín eru: Þú ert heppinn, eða eins og þú myndir segja ég er heppinn.Frægir Bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collection, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur, Hemmi, hársnillingur á Módus, Lovísa, hönnuður hjá Kjólar og konfekt, Kjartan Kjartansson athafnamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Sjá meira