Mannskæð skotárás í háskóla í Tyrklandi Kjartan Kjartansson skrifar 5. apríl 2018 14:14 Sjúkrabíll við háskólann í Eskisehir sem er um 250 kílómetra vestur af Ankara. Vísir/AFP
Starfsmaður háskóla í norðvesturhluta Tyrklands skaut fjóra kennara til bana í dag. Tyrkneskir fjölmiðlar segja að maðurinn hafi verið handtekinn. Svo virðist sem að orsök æðis mannsins hafi verið persónulegar deilur.AP-fréttastofan hefur eftir Hasan Gonen, prófessor við Osmangazi-háskólann í borginni Eskisehir, að byssumaðurinn hafi verið aðstoðarmaður við rannsóknir. Hann hafi skotið varadeildarforseta, ritari og tvo kennara við kennslufræðideild háskólans til bana. Gonen telur að árásarmaðurinn hafi aðallega ætlað að ráðast á deildarforseta sem var ekki á staðnum. Morðinginn hafi verið til rannsóknar innan skólans eftir að hann sakaði fjölda starfsfólks um að vera fylgjendur Fethullah Gulen, klerksins sem tyrknesk stjórnvöld kenna um misheppnaða tilraun til valdaráns árið 2016. Gulen er í Bandaríkjunum.Breska ríkisútvarpið BBC segir að maðurinn hafi fyrst skotið manneskju á skrifstofu deildarforsetans. Síðan hafi hann farið á efri hæð byggingarinnar og skotið þrjá aðra. Svo virðist sem að árásarmaðurinn, sem var við doktorsnám við skólann, hafi gefist upp sjálfviljugur.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Fleiri fréttir Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Sjá meira