Spænska lögreglan hefur gert upptæk átta tonn af ólöglegu mjólkurdufti, ætlað ungabörnum, í Girona á Spáni. Óprúttnir aðilar höfðu þar komið upp verksmiðju og hafið framleiðslu á mjólkurduftinu.
Starfsemin uppgötvaðist í kjölfar ábendingar frá Europol. Starfsemi samskonar verksmiðju hafði þegar verið stöðvuð í Póllandi en í aðgerð pólskra lögregluyfirvalda náðist enginn hinna seku. Vaknaði í kjölfarið grunur um að starfsemin hafði verið flutt annað.
Fjórir menn voru handteknir í aðgerðum spænsku lögreglunnar, allir pólskir ríkisborgarar. Var einn þeirra skráður mjög hættulegur í gagnagrunnum lögreglunnar vegna glæpa sem hann hefur framið í heimalandi sínu. Þrír hinna handteknu hafa áður setið í fangelsi
Þegar lögreglan kom á staðinn var varan komin á vörubretti og tilbúin til sendingar. Vörurnar voru merktar þekktum vörumerkjum í gerð barnamjólkurdufts. Ekki kemur þó fram í tilkynningu spænsku lögreglunnar nákvæmlega um hvaða vörumerki ræðir.
Ekki er talið að alvarleg heilsuvá hafi stafað af mjólkinni. Hana skorti þó nauðsynleg næringarefni og var framleidd við aðstæður sem uppfylltu ekki þær hreinlætiskröfur sem gerðar eru til framleiðslu af þessu tagi.
Spænska lögreglan gerði falsaða ungbarnamjólk upptæka

Tengdar fréttir

Evrópulögreglan óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á barnaníðingum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vísar á vefsíðu Europol með myndum sem gætu hjálpað til við að hafa uppi á barnaníðingum.

Tuttugu tölvuþrjótar handteknir eftir umfangsmikla rannsókn Europol
Tuttugu töluþrjótar voru handteknir í gær eftir umfangsmikla rannsókn Europol en þeir sviku um eina milljón evra, sem nemur um 121 milljón íslenskra króna, út úr einstaklingum á Ítalíu og í Rúmeníu.