Vesturlandið snýr aftur í Pepsi-deildina Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. maí 2018 13:16 Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfar ÍA. vísir/anton
Átjánfaldir Íslandsmeistarar ÍA vinna Inkasso-deild karla í fótbolta samkvæmt spá fyrirliða, forráðamanna og þjálfara liðanna í deildinni og endurheimta þar með sæti sitt í Pepsi-deildinni. Spáin var opinberuð á kynningarfundi Inkasso-deildarinnar í dag. Skagamenn féllu úr Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð ásamt Ólafsvíkingum en Ólsurum er einmitt spáð 2. sæti deildarinnar og þar með sæti í Pepsi-deildinni ásamt ÍA næsta sumar. Vesturlandið snýr því aftur í efstu deild ef spáin rætist. Nýliðum Njarðvíkur er spáð falli sem og Leikni úr Breiðholti sem kemur nokkuð á óvart en Leiknir var síðast í Pepsi-deildinni í fyrsta og eina skiptið árið 2015. Hinir nýliðarnir, Magni, halda sæti sínu í deildinni.Spáin fyrir Inkasso-deild karla: 1. ÍA 358 2. Víkingur Ó. 318 3. Þróttur 288 4. Þór 269 5. HK 264 6. Fram 214 7. Selfoss 178 8. Haukar 134 9. ÍR 104 10. Magni 102 11. Leiknir 78 12. Njarðvík 36Inkasso og KSÍ skrifuðu rétt í þessu undir nýjan samstarfssamning til þriggja ára sem felur í sér að 1. deild karla og kvenna mun bera nafn Inkasso næstu þrjú árin. pic.twitter.com/Lx3Hh0lKmu— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) May 2, 2018 Fylkiskonur, sem féllu úr Pepsi-deild kvenna í fyrra, vinna Inkasso-deild kvenna samkvæmt spánni en KSÍ undirritaði nýjan þriggja ára samning við Inkasso og ber 1. deild kvenna nú einnig heitið Inkasso-deildin. Keflavík fylgir Fylki upp um deild en Hamrarnir og Sindri fara niður ef marka má spánna. Skagakonur og Haukar verða í baráttu við Fylki og Keflavík en Haukarnir féllu úr Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð.Spáin fyrir Inkasso-deild kvenna: 1. Fylkir 297 2. Keflavík 257 3. ÍA 228 4. Haukar 215 5. Þróttur 153 6. Fjölnir 135 7. ÍR 119 8. Afturelding/Fram 116 9. Hamrarnir 97 10. Sindri 32
Íslenski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Fleiri fréttir Nablinn skellti sér á Kópavogsslaginn: „Leikurinn endar milljón tvö“ „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ Fram án þriggja gegn KR Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ „Það hlaut að koma að því“ Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Selfoss og KFA mætast í úrslitum „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ Sjá meira