Bjargvættur barna í Póllandi
Irena Sendler var hjúkrunarfræðingur í Póllandi þegar nasistarnir réðust þangað inn. Hún notaði sér stöðu sína sem hjúkka til að laumast inn í gettóin sem nasistar holuðu gyðingum landsins í með poka fulla af mat og lyfjum. Hún og samverkamenn hennar laumuðu svo út úr gettóunum börnum sem þau deyfðu og földu í kössum og pokum.Börnunum var síðan komið fyrir í munaðarleysingjahælum þar sem þau fengu ný nöfn en gömlu nöfnin faldi Irena í krukku sem hún gróf í garðinum sínum. Talið er að svona hafi hún og samverkamenn hennar náð að bjarga um 2500 börnum frá hræðilegum örlögum. Irena slapp þó ekki alveg sjálf – hún var fangelsuð af nasistum og pyntuð. Eftir stríðið reyndi hún að koma börnunum saman við fjölskyldur sínar, jafnvel þó að það væri nánast ómögulegt verk.
Eldri sjálfboðaliðar taka á sig geislamengun
Eftir slysið í Fukushima kjarnorkuverinu þurfti að þrífa upp gífurlegt magn kjarnorkumengunar og í þeim störfum voru oft ungt fólk sem var þar með í snertingu við gríðarlegt magn geislavirkni. Yasuteru Yamada, 72 ára fyrrum verkfræðingur fannst þetta ekki skemmtilegt áhorfs og safnaði saman 400 manna hópi eldri borgara til að taka að sér þrifin í sjálfboðavinnu. Hans röksemdarfærsla fyrir því var sú að verandi eldri borgara ættu þau mun færri ár eftir en unga fólkið og því ólíklegra að hún myndi valda í þeim krabbameini.
Sjálfviljugur í Auschwitz
Witold Pilecki var í pólsku andspyrnuhreyfingunni í Seinni heimstyrjöldinni og tók á sig það erfiða verkefni að fara viljandi í útrýmingabúðirnar Auschwitz til þess að afla upplýsinga um rétt eðli þessara „fangabúða.“ Frá honum bárust ómetanleg gögn um eðli búðanna. Hann náði að flýja úr Auschwitz eftir tveggja ára veru í útrýmingarbúðunum. Síðar var hann tekinn af lífi af rússensku leynilögreglunni.
Nasisti bjargar kínverjum
John Rabe var þýskur kaupsýslumaður og nasisti sem var búsettur í kínversku borginni Nanjing árið 1937 þegar Japanski herinn réðist þangað inn. Í kjölfarið fylgdu skipulögð fjöldamorð- og nauðganir á um 200 – 300 þúsund kínverskum konum. John Rabe notaði stöðu sína sem meðlimur í nasistaflokknum til að opna upp griðarsvæði fyrir flóttamenn og er talið að hans vegna hafi 200 til 250 þúsund kínverskir flóttamenn bjargast.
Bjargar munaðarleysingjum með hamri
Anthony Omari komst í fréttirnar eftir að notandi vefsíðunnar Reddit sagði sögu hans þar.Anthony þessi rekur ásamt móður sinni munaðarleysingjahæli í Keníu þar sem 37 munaðarlaus börn dvelja.
Þetta heimili hafði margoft lent í árásum stigamanna sem Omari hafði þó alltaf tekist að reka í burtu. Einn daginn ákváðu þessir glæpamenn að myrða Omari í hefndarskyni.
Þrír menn réðust á hann vopnaðir sveðjum þar sem hann lá sofandi í rúmi sínu. Hann náði að hrekja þá í burtu með hamri, jafnvel þó að einn ræningjanna hafi náð að höggva stærðar skurð í andlitið á honum.
Ben Hardwick nokkur var að vinna á svæðinu og það var hann sem deildi sögu Omaris á Reddit og hóf í kjölfarið söfnun fyrir munaðarleysingjaheimilinu. Söfnunin skilaði einum 65 þúsund dollurum eða um 7 milljónum íslenskra króna.