Í sögum sem leigjendur íbúðarhúsnæðis hafa sent VR segir til dæmis frá manni sem greiddi 115 þúsund krónur í leigu á mánuði. Á einum mánuði hafi leigan hækkað upp í 170 þúsund. Þá er sagt frá fjölskyldu sem tók íbúð á leigu árið 2016 og greiddi 225 þúsund.
Leigan hafi síðan verið hækkuð um 25 þúsund í fyrra og svo aftur um 25 þúsund í ár.

Þriðja dæmið er um konu sem tók hús á leigu af leigufélagi árið 2010 og greiddi 200 þúsund krónur í leigu á mánuði. Í janúar 2017 var leigan orðin 270 þúsund.
Nýlega fékk hún tilkynningu um að leigan yrði hækkuð í 400 til 450 þúsund krónur á mánuði.
Guðbrandur segir að eðlilega hafi leiguverð hækkað hjá Heimavöllum, eins og hjá mörgum öðrum, en ekkert í líkingu við það sem rætt hefur verið um. „Enda hefur ekki verið bent á slík dæmi hjá Heimavöllum hingað til.“
Hann segir þó að upp hafi komið dæmi þar sem Heimavellir hafi verið að taka yfir eignasöfn þar sem leigjendur hafi búið í íbúðum á grundvelli svokallaðrar dæmdrar leigu. Í slíkum tilfellum sé leiguverðið mjög lágt miðað við markaðsleigu.

Sá sem býr í íbúðinni hefur þá farið fyrir dómstóla og fengið seturétt í íbúðinni á því leiguverði sem dómari ákveður.
Guðbrandur gerir ráð fyrir að mesta hækkunin á leiguverði hafi verið þegar verið var að færa leiguverð úr slíkri leigu yfir í markaðsleigu.
„Ég held líka að það sé mjög til bóta fyrir umræðuna að sjá reglulegan rekstur á svona leigufélögum. Það er langt í frá að það sé sjálfgefið að það sé hægt að gera þetta, en með því að einbeita sér að því að ná fram stærðarhagkvæmni og vanda vel valið á íbúðum inn í safnið þá er þetta algjörlega raunhæfur kostur,“ segir Guðbrandur.
Leiguverð verði alltaf einhver birtingarmynd af íbúðaverði og vaxtastigi.
„Við erum að vinna á vaxtastigi sem er í rúmum fjórum prósentum. Nágrannalöndin eru í tæplega prósenti. Ef við gætum lækkað vaxtakostnað um helming þá værum við að ná fram 20 prósent lækkun á leigu að öllu óbreyttu. En auðvitað vitum við að ef vextir lækka skart þá getur það haft áhrif á eignarverð þannig að það er vandrataður vegur í þessu.“