Bikarmeistarar Tindastóls hafa fengið bandaríska leikmanninn Urald King til liðs við sig fyrir næsta tímabil í Domino's deild karla.
Vísir hefur fengið staðfest að King muni leysa skarð Antonio Hester og Chris Davenport en hvorugur þeirra sé á leið aftur í Skagafjörðinn næsta haust.
King spilaði með nýliðum Vals síðasta vetur og var lykilmaður í því að halda liðinu uppi í deild þeirra bestu. Hann setti 22,9 stig að meðaltali í leik í vetur með 15 fráköstum og 3,1 stoðsendingu og var valinn besti varnarmaður deildarinnar af sérfræðingum Domino's Körfuboltakvölds í uppgjöri síðasta tímabils.
Tindastóll náði í sinn fyrsta titil í sögu félagsins síðasta vetur þegar liðið varð bikarmeistari ásamt því að komast í úrslitaeinvígið í deildinni þar sem Stólarnir töpuðu 3-1 fyrir KR.
Urald King farinn norður á Sauðárkrók

Tengdar fréttir

Domino's Körfuboltakvöld: Kóngurinn hjá Valsmönnum bestur
Urald King var framúrskarandi í sigri Val á ÍR í Seljaskóla í sjöundu umferð Domino's deildarinnar í körfubolta.

Ágúst: King og Bracey voru magnaðir
"Þetta var rosalega mikilvægur sigur. Þeir byrjuðu leikinn mikið betur en við en í öðrum leikhluta spiluðum við hörkuleik og það gaf okkur mikið,“ segir Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals, eftir sigurinn í kvöld.

King er besti varnarmaður Domino's deildarinnar: „Góðar líkur á að ég verði áfram“
Loka umferð Domino's deildar karla í körfubolta var leikin á fimmtudaginn og úrslitakeppnin hefst í næstu viku. Strákarnir í Domino's Körfuboltakvöldi gerðu upp seinni hluta deildarinnar í gærkvöld þar sem þeir útnefndu varnarmann seinni hlutans.