Leita manns í Ölfusá Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. maí 2018 08:06 Björgunarsveitarmenn við leit á bökkum Ölfusár á níunda tímanum í morgun. Vísir/MHH
Leit stendur yfir að manni sem talinn er hafa farið fram af brúnni yfir Ölfusá í nótt. Lögreglu barst tilkynning laust eftir klukkan 3 um að maðurinn hefði farið í ána. Ræstar voru út björgunarsveitir á Suðurlandi og af höfuðborgarsvæðinu, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, og eru hópar þessir enn við leit á svæðinu. Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir í samtali við fréttastofu á níunda tímanum að viðbótarleitarlið frá höfuðborgarsvæðinu hafi verið kallað út og sé á leið á vettvang. Þá stækki leitarsvæðið eftir því sem tímanum líður. Samkvæmt upplýsingum frá Davíð Má Bjarnasyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, eru um 70 björgunarsveitarmenn nú við leit. Laust fyrir klukkan 9 í morgun var verið að skipta út hópum sem hófu leit í nótt og nýir hópar að taka við. Þá er búist við því að stækki í leitarhópnum þegar líður á morguninn. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna leitarinnar eins og áður hefur komið fram en hún fór í loftið um klukkan 4, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Þyrlan lenti aftur í Reykjavík um klukkan 6:30 og ekki stendur til að hún verði send af stað til frekari leitar. Leit beinist nú einkum að svæðinu fyrir neðan flugvallarsvæðið og Ölfusárósa.Fréttin hefur verið uppfærð.Björgunarsveitir á Suðurlandi og af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar til leitar í nótt. Myndin er frá leit við Ölfusá í morgun.Vísir/MHHMaðurinn er talinn hafa farið fram af brúnni yfir Ölfusá í nótt.Vísir/MHHAðstæður eru erfiðar við leitina vegna vatnavaxta í ánni og hvassviðris.Vísir/MHHFrá stjórn leitarinnar í Björgunarfélagi Árborgar í morgun.Vísir/MHH
Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Sex ára stúlka setti heimsmet Erlent Fleiri fréttir Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Sjá meira