Fótbolti

Ekkert pláss fyrir Sane í þýska hópnum | Neuer fer til Rússlands

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sane þarf að horfa á HM í sjónvarpinu.
Sane þarf að horfa á HM í sjónvarpinu. vísir/getty
Joachim Löw, landsliðsþjálfari Þýskalands, tilkynnti í dag 23 manna hópinn sinn fyrir HM í Rússlandi. Mesta athygli vekur að ekki er pláss í hópnum fyrir Leroy Sane, leikmann Man. City.

Sane átti frábært tímabil með City en það var ekki nóg til þess að komast í sterkan hóp þýska landsliðsins. Hann lagði upp 15 mörk á leiktíðinni og var næststoðsendingahæstur í ensku úrvalsdeildinni. Hann var svo valinn besti ungi leikmaður deildarinnar.

Sane hefur aftur á móti aðeins lagt upp eitt mark í tólf leikjum með þýska landsliðinu og ekki enn tekist að skora. Hann hefur ekki fundið sig með landsliðinu og því kemst hann ekki í hópinn.





Markvörðurinn Manuel Neuer fer með en hann spilaði leik með liðinu um helgina eftir að hafa verið frá í nánast allan vetur.

„Þetta er einn erfiðasti dagurinn í þessu starfi. Það er ekki auðvelt að senda leikmenn heim sem maður hefur engu að síður tröllatrú á,“ sagði Löw.

Þýski hópurinn:

Markverðir: Manuel Neuer (Bayern Munich), Marc-Andre ter Stegen (Barcelona), Kevin Trapp (Paris St-Germain)

Varnarmenn: Jerome Boateng (Bayern Munich), Matthias Ginter (Borussia Monchengladbach), Jonas Hector (Cologne), Mats Hummels (Bayern Munich), Joshua Kimmich (Bayern Munich), Marvin Plattenhardt (Hertha Berlin), Antonio Rudiger (Chelsea), Niklas Sule (Bayern Munich)

Miðjumenn: Julian Brandt (Bayer Leverkusen), Julian Draxler (Paris St-Germain), Leon Goretska (Schalke), Ilkay Gundogan (Manchester City), Sami Khedira (Juventus), Toni Kroos (Real Madrid), Mesut Ozil (Arsenal), Sebastian Rudy (Bayern Munich)

Framherjar: Mario Gomez (Stuttgart), Thomas Muller (Bayern Munich), Marco Reus (Borussia Dortmund), Timo Werner (RB Leipzig)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×