Ekkasog Emilíönu sem er mætt til Moskvu en missir af leiknum Kolbeinn Tumi Daðason í Moskvu skrifar 15. júní 2018 15:30 Emilíana ásamt stuðningsmönnum Íslands, frá Belgíu. Úr einkasafni
Emilíana Torrini er eins og nokkur þúsund Íslendingar mætt til Moskvu þar sem Ísland mætir Argentínu í fyrsta leik sínum á HM í fótbolta á morgun. Emilíana elskar HM en ótrúlegt en satt fer hún ekki á leikinn á morgun. Hún verður flogin á vit djasstónleika í Þýskalandi. Emiliana kemur fram á tónleikum með hljómsveit sinni The Colorist í gamalli brauðgerð frá Sovéttímanum sem gengið hefur í gegnum miklar breytingar. Söngkonan var nýbúin í sound-tékki þegar blaðamaður heyrði í henni hljóðið, hún lá úti og sleikti sólina. „Við komum hingað þrettánda og höfum verið að skoða borgina. Þetta hefur verið rosalega gaman. Í gær vorum við að prófa rússneska vodkað,“ segir Emilíana og hlær. „Það var bara æðislegt.“ Tónleikar Emilíönu í kvöld er hluti af verkefni Mennta- og menningarmálaráðuneytisins í samstarfi við ÚTÓN, útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Tríó Sunnu Gunnlaugs mun sömuleiðis troða upp en tónleikarnir hefjast klukkan átta að staðartíma. Tríó Sunnu Gunnlaugs treður upp í Moskvu í kvöld.Mynd/Hörður Sveinsson„Við erum fótboltalið,“ segir Emilíana. „Ég er búin að láta þá alla fara í íslenska búninginn. Þeir eru smá að svíkja landið sitt fyrir mig.“ Hljómsveitin er nefnilega frá Belgíu sem er einnig meðal þátttökuþjóða á HM. Í dag eru þeir íslenskir „landsliðsmenn“. Strákarnir klæddir í treyju númer ellefu en hún númer tólf. Hvernig hún fékk þá til þess að skipta um lið segir Emilíana: „Það er svo gott að láta fólk drekka vodka daginn áður, þá segir það lítið daginn eftir.“ Dramatískur grátur Hópurinn hefur notið verunnar í Moskvu og drukkið í sig stemmninguna. „Þetta er bara æði,“ segir Emilíana sem er ekki mikil áhugamanneskja um fótbolta, nema þegar kemur að heimsmeistaramótinu. „Ég horfi alltaf á heimsmeistaramótið með pabba og svona,“ segir Emilíana. Ítölsku ræturnar hafa komið sér einkar vel á fjögurra ára fresti enda Ítalía verið fastagestur á HM. „Ég hef alltaf haft lið til að halda upp á. Núna eru þeir ekki hérna en þeir halda með okkur.“ Ólíkt 99% Íslendinga í Moskvu þessa dagana kemst Emilíana ekki á stórleikinn á morgun. Óhugsandi staðreynd og henni er mikið niðri fyrir. „Þetta er eina giggið sem ég var búin að bóka fyrir ári síðan, í Stuttgart 16. og 17. júní,“ segir söngkonan. „Ég grét með sárum ekka, í alvörunni, þegar þetta var dramatískur grátur.“Emilía Torrini kemur fram á Airwaves.skjáskot úr myndbandi Torrini.Getur ekki hugsað um þetta Hún flýgur þangað í nótt eftir tónleikana og er ekkert sérstaklega skemmt með þá staðreynd, þvert á móti. „Ég verð í ekkasogum, get ekki hugsað um þetta. Þetta er svo hryllilegt.“ Búið er að útvega henni skjá svo hún geti horft á leikinn í Þýskalandi á morgun. Hún var búin að hugsa út í það hvernig hún myndi redda þessu hefði leikurinn hitt á tónleikatíma, það er verið að kvöldi en ekki í hádeginu. „Þá hefði ég verið með gjörning, verið að horfa á sjónvarpið á meðan ég var að syngja.“Hugur Emilíönu er hjá Hannesi Þór Halldórssyni.vísri/vilhelmPældu í heilunardans í Moskvu Hún segist ekki geta spáð fyrir um úrslit leiksins, hún hafi ekki hugmynd um það. „Þetta hlýtur að vera svo ótrúlega mikill draumur.“En hún ætlar að senda Hannesi Þór Halldórssyni, markverði Íslands, hlýja strauma. „Að hann passi markið,“ segir Emilíana. Hannes er ekkert í uppáhaldi frekar en aðrir, þeir eru það allir. „Þetta lið er eins og einn hvalur, ég á ekkert uppáhald,“ segir Emilíana. Hún hefur töluvert hugsað um meiðslavandræði strákanna okkar sem fjallað hefur verið mikið um. Aron Einar og Gylfi hafa glímt við meiðsli ásamt fleirum. „Við ætluðum að vera með númerin þeirra á bolunum okkar, ætlluðum að gera heilunardans hérna í Moskvu,“ segir hún og hlær. Okkar menn á æfingu á keppnisleikvanginum í dag.Vísir/VilhelmMinnist HM á Englandsárunum Raunar er Emilíönu næstum því sama um úrslitin. „Þetta hlýtur að vera ótrúlega mikill draumur að vera þarna og fá að spila á móti Messi og Argentínu, og hérna - í Moskvu!“ Hún lofsyngur borgina og veruna hér. „Þetta er búið að vera æði. Maður áttar sig ekki á því hvað þessi borg er risastór. Maður er að ferðast í bíl í 4-5 tíma á dag en rosalega er hún falleg og fólkið mjög skemmtilegt.“ Henni þykir líka leiðinlegt að fyrst hún missir af leiknum hérna að geta ekki notið hans heima á Íslandi með manni sínum og syni. „Ef ekki hér með fjölskyldunni þá á Íslandi að drekka inn stemmninguna. Þetta var svo ótrúlega gaman síðast. Ég veit ekkert skemmtilegra en þegar ég bjó á Englandi og HM var í gangi. Svo ótrúleg stemmning, allir brosandi hringinn í kring.“Tónleikarnir hefjast klukkan átta í kvöld og áhugasamir geta kynnt sér þá betur hér.
HM 2018 í Rússlandi Tónlist Mest lesið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Lífið Próteinbollur að hætti Gumma kíró Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið „Pabbi minn vakir yfir mér“ Lífið Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Fleiri fréttir Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sjá meira