Marokkó var mun meira með boltann í leiknum og sterkari aðilinn en Íranir ógnuðu mikið í skyndisóknum og föstum leikatriðum. Íranir fengu besta færi fyrri hálfleiks eftir skyndisókn og skoruðu síðan sigurmarkið eftir aukaspyrnu.
Aziz Bouhaddouz, framherji Marokkó, var þarna kominn í vörnina til að verjast föstu leikatriði og skallaði boltann glæsilega í eigið mark. Það var enginn fyrir framan hann og enginn að trufla hann. Skelfileg mistök sem svo gott sem gerðu út um möguleika Marokkó á að gera eitthvað á þessu heimsmeistaramóti.
Hin liðin í riðlinum eru Spánn og Portúgal og afar ólíklegt að Marokkó fari að vinna báða leikina á móti þeim.
Næstu dagar verða erfiðir fyrir Aziz Bouhaddouz en hann sást strunsa af velli í leikslok á sama tíma og Íranir fögnuðu gríðarlega og þökkuðu Allah fyrir.
1 - Since 1966, Iran are the first team to score a goal in a half of football in the World Cup without attempting a single shot in that half. Fortunate. #MARIRN#MAR#IRN#WorldCuppic.twitter.com/AVD7xVJfU9
— OptaJoe (@OptaJoe) June 15, 2018