Góðgerðastofnun Móður Teresu seldi börn Kjartan Kjartansson skrifar 5. júlí 2018 10:46 Nunnur frá Trúboðum kærleikans á bæn. Vísir/EPA
Lögreglan á Indlandi hefur handtekið konu sem vinnur fyrir góðgerðasamtök Móður Teresu vegna gruns um að hún hafi selt fjórtán daga gamalt barn. Tvær aðrar konur sem vinna fyrir samtökin hafa einnig verið handtekin vegna gruns fleiri slík tilfelli. Barnaverndarnefnd í Jharkhand-héraði á austurhluta Indlands tilkynnti möguleg brot starfsmanna Trúboða kærleikans, góðgerðasamtaka nunnunnar umdeildu sem lést árið 1997. Fulltrúi nefndarinnar segir að nýfætt barn hafi verið selt pari í Uttar Pradesh en þeim hafi verið sagt að féð væri til að greiða fyrir sjúkrahúskostnað. Breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir lögreglunni að samtökin hafi selt fleiri börn með ólögmætum hætti. Lögreglan hafi fengið nöfn mæðra barnanna og rannsókn sé í gangi. Trúboðar kærleikans reka miðstöðvar fyrir ógiftar óléttar konur um allt Indland. Miðstöðvarnar hættu að annast ættleiðingar fyrir þremur árum þegar þær gátu ekki lengur staðist ákvæði nýrra laga um ættleiðingar. Móðir barnsins sem var selt leitaði á náðir samtakanna í mars en barnið var selt í maí. Barnaverndarnefndin segist hafa fært þrettán verðandi mæður sem hafa dvalið í miðstöð samtakanna í borginni Ranchi annað. Þekkt er að ólögleg viðskipti með börn viðgangast á Indlandi, meðal annars vegna strangra laga um ættleiðingar og langra biðlista.
Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Sjá meira