Sést „loksins“ til sólar Stefán Ó. Jónsson skrifar 5. júlí 2018 07:22 Þessi ættu að geta skilið regnhlífina eftir heima í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Eftir rigningu á suðvesturhorninu og sólargeisla á Norðausturlandi virðist taflið ætla að snúast við í dag. Spákort Veðurstofunnar bera með sér að það muni rigna okkuð hraustlega sums staðar á norðan- og austanverðu landinum, einkum við ströndina. Þá er líka útlit fyrir hvassa norðvestanátt og snarpar vindhviður á svæðinu. Hins vegar léttir víða til á suður- og vesturhluta landsins með deginum - „og ætti að sjást til sólar loksins,“ eins og það er orðað á vef Veðurstofunnar. Hitinn ætti almennt að vera á bilinu 8 til 15 stig í dag. Þrátt fyrir sól á Suðvesturlandi er búist við að hlýjast verði á suðausturhorninu, til að mynda í Skaftafelli. Lægðin mun svo fjarlægjast landið á morgun og mun þá létta til og hlýna um landið austanvert. Vestantil mun þó aftur þykkna upp og fylgir því væta síðdegis á morgun. Það er svo útlit fyrir skúri á landinu á laugardag, einkum þó á vesturhorninu og á sunnudag gengur næsta lægð yfir landið. Hún er þó ekki alslæmt að sögn Veðurstofunnar því henni mun fylgja aðeins hlýrra loft.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ föstudag: Vestlæg átt, 5-10 en hægari vestantil. Styttir upp norðaustanlands með morgninum, annars bjart með köflum. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast suðaustantil. Á laugardag:Hæg suðlæg átt og skýjað með köflum, skúrir í flestum landshlutum. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi.Á sunnudag:Hægt vaxandi suðvestanátt með rigningu um suðvestan og vestanvert landið en bjartviðri austantil. Hlýnar í veðri og hiti allt að 18 stig austast.Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:Útlit fyrir suðvestanátt með rigningu eða skúrum S- og V-lands en bjartviðri austanlands. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast um landið NA-vert.
Veður Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Sjá meira